Fannst fyrir tilviljun á heimili grunaðs barnaníðings eftir að hafa verið saknað í rúm tvö ár Kristín Ólafsdóttir skrifar 23. desember 2019 07:45 Drengurinn fannst í þýska bænum Recklinghausen á föstudag. Vísir/getty
Þýskur unglingspiltur, sem saknað hafði verið í tvö og hálft ár, fannst heilu og höldnu á heimili karlmanns á föstudag. Lögregla var við leit á heimili mannsins vegna gruns um að hann stæði að dreifingu barnakláms og fann drenginn þar fyrir tilviljun. Í tilkynningu frá lögreglu í bænum Recklinghausen í vesturhluta Þýskalands, þar sem drengurinn fannst, segir að lögreglumenn hafi fundið piltinn inni í skáp á heimili mannsins. Rannsókn hafi leitt í ljós að um hafi verið að ræða umræddan dreng sem ekkert hafði spurst til í rúm tvö ár.Deutsche Welle hefur eftir lögreglu að ekkert bendi þó til þess að drengnum hafi verið haldið á heimili mannsins, sem er á fimmtugsaldri, gegn vilja sínum. Pilturinn er nú í umsjá lögreglu en hann hefur ekki verið nafngreindur á grundvelli þýskra laga. Maðurinn er jafnframt sagður grunaður barnaníðingur í frétt miðilsins. Tveir voru handteknir á vettvangi, umræddur húsráðandi og faðir hans sem býr á heimilinu. Þeim síðarnefnda var síðar sleppt en sá fyrrnefndi var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um kynferðisbrot. Þá lagði lögregla hald á raftæki í hans eigu sem fundust á heimilinu. Í frétt Deutsche Welle segir að síðast hafi spurst til piltsins þegar hann bjó í athvarfi fyrir heimilislausa árið 2017. Félagsráðgjafar tilkynntu hvarf hans til yfirvalda en leit bar ekki árangur. Móðir drengsins ræðir málið í samtali við þýska dagblaðið Bild. Hún segir í samtali við miðilinn að hún hafi varla þekkt son sinn þegar hún hitti hann. Þá segir hún hann hafa litið út eins og „brotinn, gamall maður“. Þá kveður hún víst að maðurinn sem handtekinn var hafi haft drenginn algjörlega á valdi sínu.
Þýskaland Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira