Viðskipti erlent

Systur­fyrir­tæki eins stærsta ópíóíða­fram­leiðandans setur mót­efni á markað

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Systurfyrirtæki Purdue Pharma, Mundipharma, setti á markað mótlyf við ópíóíðum.
Systurfyrirtæki Purdue Pharma, Mundipharma, setti á markað mótlyf við ópíóíðum. getty/Geography Photos/Darren McCollester

Systurfyrirtæki ópíóðaframleiðandans Purdue Pharma hefur sett á markað mótlyf við ópíóíða ofskömmtun. Purdue stendur nú í málaferlum í Bandaríkjum vegna aðildar sinnar að ópíóíðafaraldrinum svokallaða og er talið einn helsti áhrifavaldur faraldsins vegna markaðssetningar fyrirtækisins á ópíóíðalyfinu OxyContin. Frá þessu er greint á vef fréttastofu AP.

Þrátt fyrir að Purdue standi í þúsundum málaferla í Bandaríkjunum hefur Mundipharma, systurfyrirtæki þess, sótt í sig veðrið annars staðar, meðal annars í Evrópu og Ástralíu, og hefur Mundipharma notast við sömu sölutækni og Purdue gerði við sölu OxyContin.

OxyContin er talið eitt skæðasta ópíóíðalyfið á bandarískum markaði.getty/George Frey

Purdue Pharma er talið hafa leikið lykilhlutverk í að ýta undir útgáfu lyfseðla sem varð til þess að faraldurinn í Bandaríkjunum braust út með því að breyta því hvernig verkir voru meðhöndlaðir um aldamótin 2000. Purdue var fjórði stærsti ópíóíðaframleiðandinn í Bandaríkjunum þrátt fyrir að hafa átt aðeins um 3% markaðarins.

Sjá einnig: Ópíóðar mark­visst seldir þeim sem veikastir voru fyrir

Purdue seldi 378 milljarða króna virði af lyfi sínu OxyContin, sem er mjög sterkt ópíóíðalyf og var virði þess á markaði árið 2010 þriðjungur ópíóíðamarkaðarins á hápunktinum. Í lyfinu eru oxycodone, sem er sterkur ópíóíði sem framleitt er úr valmúa og er efnið sterkara en morfín. Lyfinu hefur víða verið kennt um fjölgun ofskammta á fyrsta áratugi 21. aldar.

Sjá einnig: Sackler fjölskyldan rakar inn milljörðum á sölu OxyContin

Mótlyfið sem Mundipharma hefur sett á markað er kallað Nyxoid og er það nefsprey gert úr lyfinu naloxone sem vinnur gegn ofskömmtun. Naloxone lyf geta skipt sköpum og bjargað lífum fólks ef til ofskömmtunar kemur. Nyxoid var nýlega samþykkt á nýsjálenskum, áströlskum og evrópskum markaði.

Nyxoid skammtar of dýrir miðað við framleiðsluverð

Patrice Grand, talsmaður Mundipharma í Evrópu, sagði í yfirlýsingu að heróín sé einn helsti valdur dauðsfalla vegna ofskammta í Evrópu og sagði hann að naloxone nefsprey gæti skipt sköpum.

Naloxone hefur lengi verið til sem stungulyf og er það bæði algengt og ódýrt lyf. Hins vegar er Nyxoid eitt fyrsta lyfið í mörum löndum sem kemur í formi nefspreys en það er auðveldara í notkun og ekki eins óhugnanlegt fyrir þá sem verða vitni að ofskömmtun og getur gert fólki auðveldara að bregðast við svoleiðis aðstæðum.

Naloxone lyf í sprautuformi.getty/Joe Phelan

Nyxoid er ekki selt í Bandaríkjunum en það er dýrara en naloxone sem hægt er að sprauta í æð en skammturinn kostar rúmar sex þúsund krónur í mörgum Evrópulöndum. Svipað lyf hefur verið til í Bandaríkjunum í mörg ár sem kallast Narcan.

Gagnrýnendur segja að Nyxoid sé óhóflega dýrt sérstaklega þar sem ódýr naloxone lyf eru nú þegar til á markaði. Grand vildi ekki greina frá því í samtali við fréttafólk hver framleiðslukostnaður Nyxoid sé eða hve mikið fyrirtækið hefur grætt á lyfinu.

Sjá einnig: Ein tafla getur verið banvæn

„Þið eruð að selja lyf sem valda fíkn og ofskömmtun og núna eruð þið að selja lyf sem vinna gegn fíkn og ofskömmtun?“ spurði Andrew Kolodny, sem hefur verið hávær gagnrýnandi Purdue og hefur vitnað gegn fyrirtækinu fyrir dómi. „Það er frekar sniðugt er það ekki?“

Naloxone í formi nefspreys. Narcan hefur verið aðgengilegt í Bandaríkjunum í fjölda ára.getty/Drew Angerer

Mundipharma greiddi fyrir rannsókn á naloxone í Ástralíu og voru niðurstöðurnar úr henni notaðar fyrir 840 milljóna króna verkefni til að dreifa naloxone lyfjum í Ástralíu, þar á meðal Nyxoid. Í október tilkynnti ástralski heilbrigðisráðherrann Greg Hunt að Nyxoid yrði niðurgreitt af ríkinu og kostar skammturinn nú aðeins rúmar fimm hundruð krónur í stað sex þúsund.

Í sumum löndum, þar á meðal Noregi, er Nyxoid eina naloxone lyfið í formi neyfspreys sem er á markaði samkvæmt Thomas Clausen, prófessor við Háskólann í Osló en hann fer með yfirumsjón naloxone verkefnis landsins. Hann segist vera ánægður að Nyxoid sé aðgengilegt en verra sé að fyrirtæki sem þekkt er fyrir yfirgengilega markaðssetningu á ópíóíðalyfjum græði á ópíóíðafíkn á þennan hátt.

Þá sagðist hann vona að fleiri fyrirtæki myndu fara inn á þennan markað og að samkeppni myndi lækka verð á naloxone. Hann bætti því við að naloxone væri svo ódýrt að Sameinuðu þjóðirnar hafi hrundið af stað verkefni í Mið-Asíu þar sem skammturinn af naloxone í sprautuformi kostaði í kring um hundrað krónur. Þá kostar Nyxoid rúmar fimm þúsund krónur í Svíþjóð.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×