Ópíóða framleiðandi talinn líklegur til að lýsa yfir gjaldþroti til að komast hjá sáttagreiðslum Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 8. september 2019 18:17 Purdue Pharma er talið líklegt til að lýsa yfir gjaldþroti til að komast hjá sáttagreiðslum. AP/Drew Angerer
Ekki er víst hvort Sackler fjölskyldan og lyfjafyrirtæki þeirra, Purdue Pharma, muni greiða yfirvöldum í Bandaríkjunum skaðabótafé vegna ópíóða faraldursins svokallaða. Ríkissaksóknari segir samningsviðræður um sáttagjöld ekki lengur virkar. Frá þessu er greint á vef fréttastofu AP. Saksóknarinn sem farið hefur með samningsviðræður við fyrirtækið, sem bjó til ópíóðalyfið OxyContin, og Sackler fjölskylduna segist gera ráð fyrir að Purdue muni lýsa yfir gjaldþroti. Carl Tobias, prófessor við Richmond School of Law háskólann segir ólíklegt að stefnendur muni fá háar upphæðir í sáttagreiðslur. Hann telur Sackler fjölskylduna ólíklega til að greiða úr eigin vasa þegar fyrirtækið verður orðið gjaldþrota. Nærri hvert einasta ríki Bandaríkjanna og um 2.000 svæðastjórnir hafa kært lyfjafyrirtæki vegna ópíóðafaraldursins sem talinn er bera ábyrgð á meira en 400.000 dauðsföllum í Bandaríkjunum á síðustu tveimur áratugum. Ákærurnar mála Stamford, sem er útibú Purdue í Conneticut, sem stærstu ógnina. Fyrirtækið er sagt hafa gefið ófullnægjandi upplýsingar þegar lyfið var auglýst og hafa gert lítið úr því hve lyfið væri ávanabindandi. Þá hafi fyrirtækið þrýst á lækna að skrifa upp á ópíóðalyf við minnsta tilfelli. Purdue átti þó aðeins 3% ópíóðamarkaðarins en er talið bera mun meiri ábyrgð á því hve alvarleg áhrif þess voru.getty/George FreyÁ laugardag sendu tveir ríkissaksóknarar, Herbert Slatery ríkissaksóknari í Tennessee og Josh Stein ríkissaksóknari í Norður Karólínu, sendu kollegum sínum tölvupóst þess efnis að samningaviðræður hefðu staðnað og þeir teldu að fyrirtækið myndi lýsa sig gjaldþrota. Talskona Purdue og umboðskona Sackler fjölskyldunnar vildi ekki tjá sig um efni tölvupóstanna þegar AP reyndi að ná tali af henni. Purdue hefur haldið því til streitu í marga mánuði að það hyggist semja um sáttagreiðslur í öllum kærumálum gegn því en hefur einnig hótað að lýsa sig gjaldþrota. Gjaldþrot myndi breyta lögsóknarmálunum gegn Purdue gríðarlega. Líklegt er að fella þyrfti niður málið gegn Purdue.Sjá einnig: Ópíóðar markvisst seldir þeim sem veikastir voru fyrirSjá einnig: Ópíóðar stærsta heilbrigðisógn í sögu ríkisinsMálið sem verið er að höfða gegn Purdue er eins og áður segir margþætt og meira en 2.000 kærur í heildina. Það er þó verið að kæra fyrirtækið fyrir alríkisdómi sem gerir kærendum kleift að höfða mál sín saman, sem verið er að gera. Málið er tekið fyrir í Cleveland fyrir alríkisdómi og á það að hefjast 21. október ef ekkert breytist. Paul Hanly, lögmaður fyrir hóp svæðastjórna, verkalýðsfélaga, sjúkrahúsa og annarra sem hafa kært fyrirtækið fyrir alríkisdómi sagði í yfirlýsingu að ef upp úr samningaviðræðum flosnaði væri það í óþökk skjólstæðinga hans. Hann segir sækjendur ekki ætla að gefast upp og að þeir muni halda ótrauðir áfram sama hvort Purdue lýsir yfir gjaldþroti eða ekki. Ef Purdue lýsir yfir gjaldþroti færi málið fyrir svokallaðan gjaldþrotsdóm og myndi gjaldþrots dómari hafa mikið um það að segja hvernig skipta ætti þrotabúi fyrirtækisins.Erfitt að sækja fjölskyldumeðlimi Sackler til saka Markaðsvirði fyrirtækisins hefur farið lækkandi frá því dómsmálin voru höfðuð og heldur áfram að falla. Því yrði litlu fé skipt á milli yfir 2.000 sækjenda sem yrði lá fjárhæð fyrir hvern og einn. Á tímabili leit út fyrir að yfirvöld myndu fá á bilinu tíu til tólf milljarða Bandaríkjadala, sem nemur 1.260 til 1.518 milljörðum íslenskra króna. Auk þess hefði Sackler fjölskyldan þurft að greiða 3 milljarða Bandaríkjadala, eða um 380 milljörðum íslenskra króna. Ef þessi samningur hefði verið samþykktur hefði Purdue verið sett í svokallað skipulagt gjaldþrot. Ef svo veður að fyrirtækið lýsi yfir gjaldþroti þýðir það ekki að enginn sem tengist Purdue verði sóttur til saka. Minnst 17 ríki hafa ákært einn eða fleiri fjölskyldumeðlimi Sackler fjölskyldunnar og ríkissaksóknari Pennsylvaniu, Josh Shapiro, segist ætla að bætast í þann hóp. „Það er eitt stórt vandamál við það og það er að það gæti reynst ríkjunum erfitt að sannfæra dómarana um að fjölskyldumeðlimir beri persónulega ábyrgð,“ segir Tobias. „Og ef það gerist gæti það reynst sækjendum erfitt að krefjast skaðabóta ef fjármunir meðlimanna eru geymdir erlendis.“ Árið 2016 greindi tímaritið Forbes frá því að fjölskyldan ætti meira en 13 milljarða Bandaríkjadala í fjármunum, sem nemur 1.644 milljörðum íslenskra króna. Ríkissaksóknarinn í New York hefur lagt fram kröfu um að bókhald allra fyrirtækja sem tengjast fjölskyldunni til að rannsaka það hvernig fjölskyldan flutti fjármuni af landi brott.
Bandaríkin Fíkniefnavandinn Mest lesið Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Erlent „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Innlent Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Innlent Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags Innlent Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Innlent Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Erlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Fleiri fréttir Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Sjá meira
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent