Lífið samstarf

Ný vefverslun Rún heildverslunar fer vel af stað

Rún heildverslun kynnir
Maren Rós Steindórsdóttir hjá Rún heildverslun
Maren Rós Steindórsdóttir hjá Rún heildverslun

„Það er hægt að gera frábær kaup hjá okkur í gegnum nýju vefverslunina run.is. Við bjóðum 30% afslátt af heimilisvöru og JBS OF DENMARK á vefversluninni til jóla,“ segir Maren Rós Steindórsdóttir hjá Rún heildverslun en nýlega fór vefverslunin run.is í loftið og leysti af hólmi Rökkvu vefverslun, sem Rún Heildverslun hafði rekið um nokkra ára skeið. Run.is fer vel af stað.

„Viðtökurnar hafa verið virkilega góðar enda þekkir fólk orðið vörurnar okkar nokkuð vel, bæði í gegnum Rökkvu og í gegnum Lagersölurnar sem Rún Heildverslun hefur verið með einu sinni til tvisvar á ári undanfarin ár,“ segir Maren. „Við heimilisvöruna, sem haldið var úti á Rökkvu, höfum við bætt við úrvali af kósýfatnaði, herravöru og barnafatnaði sem við vorum ekki með áður. Planið er síðan að sjálfsögðu að halda áfram að bæta við vöruflokkana okkar hægt og rólega,“ segir Maren

„Þær vörur sem fást þegar í vefversluninni eru aðalega heimilisvara það er að segja rúmföt, lök, koddar, sængur, ullarteppi og handklæði. Svo erum við með 100%  Merino ullarfatnað á börn og fullorðna. Kósýfatnaðurinn okkar, sem er glæný lína framleidd af JBS OF DENMARK, hefur rokið út og greinilegt að fólk er að kaupa þetta bæði í gjafir og sem jólanáttfötin heima við. Þessi föt eru unnin úr blöndu af bambus, ull og lífrænni bómull sem gerir þau ótrúlega þægileg. Eins erum við með mikið úrval af JBS og CR7 herranærbuxum og sokkum, Decoy dömu sokka, sokkabuxur og náttsloppa. Og síðast enn ekki síst frábæru herravörurnar frá Lindbergh Fashion sem hafa verið vinsælar hérlendis um áratuga skeið. Það geta allir verslað af run.is og ef verslað er fyrir meira en tíu þúsund krónur sendum við frítt með pósti.“

Þessi kynning er unnin í samstarfi við Rún heildverslun.

Sjá myndir hér fyrir neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×