Innlent

Nagla­­motta stöðvaði langa eftir­för um höfuð­­borgar­­svæðið

Eiður Þór Árnason skrifar
Annasöm nótt var hjá lögreglu.
Annasöm nótt var hjá lögreglu. Vísir/Vilhelm
Lögregla veitti ökumanni bifreiðar í Reykjavík eftirför á fjórða tímanum í nótt eftir að hann sinnti ekki stöðvunarmerki lögreglu. Samkvæmt bókum lögreglu hafði ökutækið sem um ræðir verið tilkynnt stolið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Eftirför lögreglu stóð lengi yfir og var ökumanninum veitt eftirför um Reykjavík, Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð. Ökumaðurinn stöðvaði ekki bifreiðina fyrr en í Hafnarfirði eftir að hafa ekið yfir naglamottu lögreglu. Nokkuð seinna ók hann á lögreglubifreið. Lítið tjón var á bifreiðum og engin slys voru á fólki samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.


Tengdar fréttir

För ökuníðings stöðvuð í Mosfellsbæ

Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu í Mosfellsbæ á tólfta tímanum í dag þar sem von var á ökumanni ofan af Akranesi sem ók bíl sínum langt umfram löglegan hámarkshraða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×