Skoðun

Frí­tími og fjöl­skyldu­líf með vinnu

Sandra Bryndísardóttir Franks skrifar
Við hjá Sjúkraliðafélag Íslands höfum lengi bent á yfirvofandi skort á sjúkraliðum, álag í starfi er mikið  og nýliðun í stéttinni er ófullnægjandi. Það er því brýnt að grípa til tafarlausra aðgerða til að sporna við þessari þróun.

Á ríkisstjórnarfundi í ágúst var samþykkt að setja á laggirnar starfshóp um betri mönnun í heilbrigðisþjónustunni. Lengi vel hefur áhersla stjórnvalda verið á aðrar heilbrigðisstéttir og sjúkraliðar mætt afgangi, en okkur hefur loksins tekist að ná áheyrn heilbrigðisyfirvalda þar sem nú verður leitað leiða til að fjölga sjúkraliðum. Starfshópur fyrir sjúkraliða er skipaður fulltrúum stjórnvalda ásamt aðilum frá Háskóla Íslands, Landspítala og Sjúkraliðafélaginu. Starfshópurinn á að skila tillögum sínum í desember 2019 sem hafa það að markmiði að fjölga bæði nemendum og útskrifuðum sjúkraliðum, og auka möguleika á framhaldsmenntun sjúkraliða.

Með vinnu starfshópsins verður leitast við að leggja fram fram raunhæfar leiðir til þess að bæta mönnun í heilbrigðisþjónustunni. Hins vegar er ljóst að vinnutími skiptir sköpum þegar stefnt er að því að laða fólk til vinnu og því þarf einnig að taka tillit til breyttra gilda á vinnumarkaði. Í fyrsta lagi þurfum við að horfast í augu við breytt viðhorf unga fólksins til vinnu sem hefur sett sér skýrari mörk um hversu langt vinnan getur gengið gagnvart frítíma og fjölskyldulífi. Í öðru lagi þurfum við að vera upplýst um að vaktavinna er álagsþáttur sem auðveldlega getur leitt til heilsubrests, eins og fjölmörg dæmi eru um. Í þessu verkefni fellst því mikil áskorun en um 89% sjúkraliða eru í vaktavinnu. Þá er meirihluti sjúkraliða í hlutastarfi, meðal annars vegna þess að vinnuveitendur telja að fullt starf í vaktavinnu vera of krefjandi.

Allir sem til þekkja vita að hlutverk sjúkraliða í heilbrigðiskerfinu er gríðarlega mikilvægt, það er því brýnt að markvisst sé unnið að því að bæta starfsumhverfið þannig að þeir hverfi ekki úr stéttinni vegna erfiðra starfsskilyrða. Við hjá Sjúkraliðafélaginu leggjum áherslu á í yfirstandandi kjaraviðræðum að stytta vinnuvikuna í 35 stundir í dagvinnu og að vinnuvika vaktavinnufólks verði 80% af vinnutíma dagvinnufólks án launaskerðinga. Ef við bregðumst ekki við núna og bætum kjör og vinnuaðstæður sjúkraliða, stefnir í fækkun í faginu sem mun leiða af sér ófremdarástand innan heilbrigðiskerfisins.

Höfundur er formaður Sjúkraliðafélags Íslands.


Tengdar fréttir

Vakta­vinna er á­lags­þáttur

Sjúkraliðar krefjast þess að vinnuvikan verði stytt í 35 klukkustundir og enn meira fyrir vaktavinnufólk.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×