Innlent

Slökkvi­lið kallað út vegna elds í verk­smiðju Elkem

Atli Ísleifsson og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa
Ekki er vitað um umfang eldsins að svo stöddu.
Ekki er vitað um umfang eldsins að svo stöddu. Fréttablaðið/Anton Brink
Slökkviliðið á Akranesi hefur verið kallað út vegna elds í verksmiðju Elkem á Grundartanga.

Samkvæmt upplýsingum frá Þráni Ólafssyni, slökkviliðsstjóra á Akranesi, virðist eldur hafa upp í skautum á fjórðu hæð verksmiðjunnar. Unnið er að slökkvistarfi.

Slökkvilið mætti á staðinn skömmu eftir klukkan sjö í morgun.

Uppfært 8:41: Samkvæmt upplýsingum frá Þráni er búið að slökkva eldinn og eru slökkviliðsmenn nú að ganga frá. Ekki er vitað um tjón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×