Innlent

Vilja fjölga farþegum strætó

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Vonast er til þess að farþegum strætó fjölgi með tilkomu nýs leiðarnets sem var kynnt í gær. Framkvæmdastjóri Strætó segir að með nýja kerfinu gæti orðið fljótlegra að ferðast með strætó en á einkabílnum.

Strætó óskar eftir aðkomu almennings við mótun nýs leiðanets en breytingar eru framundan í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. „Helstu breytingarnar kannski í þessu leiðaneti eru meiri tíðni, öflugri stofnleiðir og síðan almennar leiðir sem að flæða inn á þetta. Svo er náttúrlega hugmyndin að þetta renni bara inn í borgarlínuna þegar hún verður tilbúin í þeim áföngum sem hún kemur inn,“ segir Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó.

Sjá einnig: Nýtt leiðanet Strætó og borgarlínu: Styttri ferðatími en lengri ganga á næstu biðstöð

Á helstu stofnleiðum er gert ráð fyrir að strætó aki á 7 til 10 mínútna fresti á annatíma. Aðrar leiðir aka á 15 mínútna fresti á annatíma en 20 til 30 mínútna fresti þess utan. „Þegar að sérrýmin eru komin öll til framkvæmda þá erum við að tala um að þetta sé bara jafnvel styttra en bíllinn en svona almennt eru almenningssamgöngur örlítið lengri,“ segir Jóhannes og vísar þar til ferðatímans.

Samkvæmt fyrstu hugmyndum um nýtt leiðanet munu meira en tvöfalt fleiri íbúar höfuðborgarsvæðisins búa í innan við 400 metra radíus frá stoppistöð þar sem ferðir eru tíðari, þ.e. frá svokölluðum stofnbrautum. Sá tími sem það tekur að ganga að næstu stoppistöð kann þó að lengjast.

„Við höfum svolítið haft hérna á höfuðborgarsvæðinu svokallað þekjandi kerfi þar sem fólk þarf ekki að labba mjög langt til að ná í strætó. Það hefur aftur á móti bitnað á tíðninni og hún er þá verri heldur en við vildum hafa þannig að það hefur verið svolítið að ryðja sér til rúms að fólk labbi örlítið lengra en komist þá fljótar á áfangastað,“ segir Jóhannes.

Gert er ráð fyrir að nýja leiðanetið verði tekið í notkun í áföngum. „Við erum svona að kalla eftir ábendingum frá almenningi og svona leiðanet í smíði, hún tekur langan tíma.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×