Kalla eftir því að lögreglumaðurinn verði ákærður Sylvía Hall skrifar 14. október 2019 19:32 Blóm og bangsar voru lagðir á stéttina fyrir utan heimili Jefferson eftir að hún var skotin til bana af lögreglumanni. Vísir/AP
Lögreglumaðurinn sem skaut hina 28 ára gömlu Atiönu Jefferson á heimili hennar á laugardagsmorgun hefur sagt upp störfum. Nágranni hennar hafði hringt á lögreglu vegna þess að útidyrahurð húss hennar hafði verið opin um nóttina. Jefferson var búsett í húsi í bænum Fort Worth í Texasríki ásamt átta ára gömlum frænda sínum. Frændi hennar var á heimilinu þegar Jefferson var skotin til bana, en skotinu var hleypt af aðeins örfáum sekúndum eftir að hann kom auga á hana.Sjá einnig: Ung kona myrt af lögreglumanni á heimili hennar Lögmaður fjölskyldu Jefferson segir það aðeins gera sársauka fjölskyldunnar verri að lögreglumaðurinn hafi ekki verið handtekinn. Það að hann væri ekki lengur við störf væri það allra minnsta sem lögreglan í Fort Worth gæti gert. Á upptökum úr búkmyndavélum lögreglumannsins sést hann kanna svæðið fyrir utan húsið áður en hann sá Jefferson í gegnum svefnherbergisglugga hennar. Hann skipaði henni að setja hendur í loft og skaut hana nánast samstundis. Samtök lögreglumanna í Fort Worth segja það vera ljóst að mistök áttu sér stað á laugardagsmorgun og slík mistök ættu ekki að gerast. Betsy Price, borgarstjóri Fort Worth, hefur kallað eftir réttlæti og uppgjöri fyrir fjölskyldu Jefferson.
Bandaríkin Tengdar fréttir Ung kona myrt af lögreglumanni á heimili hennar Ung kona lést eftir að lögreglumaður skaut hana til bana í hennar eigin svefnherbergi snemma á laugardagsmorgunn. 13. október 2019 16:51 Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira
Ung kona myrt af lögreglumanni á heimili hennar Ung kona lést eftir að lögreglumaður skaut hana til bana í hennar eigin svefnherbergi snemma á laugardagsmorgunn. 13. október 2019 16:51