Viðskipti innlent

Sölvi og Þor­björg Ásta til BBA//Fjeldco

Atli Ísleifsson skrifar
Þorbjörg Ásta Leifsdóttir og Sölvi Sölvason.
Þorbjörg Ásta Leifsdóttir og Sölvi Sölvason. BBA//Fjeldco
Lögmannsstofan BBA//Fjeldco hefur ráðið til sín tvo nýja sérfræðinga, Sölva Sölvason, lögmann og fyrrverandi forstöðumann á fyrirtækjasviði Arion banka og Þorbjörgu Ástu Leifsdóttur, sem starfaði hjá samkeppnisréttadeild Kroman Reumert í Danmörku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofunni. Þar segir að markmið ráðninganna sé að auka sérþekkingu í samkeppnisrétti og dýpka enn frekar sérhæfingu og þjónustu stofunnar vegna fjármögnunar fyrirtækja.

„Sölvi hefur starfað sem forstöðumaður hjá Arion banka frá árinu 2010, en starfaði áður m.a. hjá Íslandsbanka, Kaupþingi banka og Kaupthing Bank Luxembourg. Sölvi, sem hefur um áratuga skeið unnið með fjármálafyrirtækjum að fjármögnun fyrirtækja, mun stýra sérhæfðu teymi innan BBA//Fjeldco, sem mun annast gerð fjármögnunarsamninga fyrir viðskiptavini stofunnar.

Þorbjörg Ásta Leifsdóttir hefur mikla reynslu af samkeppnisrétti, en undanfarin ár hefur hún starfað hjá samkeppnisréttardeild Kromann Reumert, sem er ein fremsta lögmannsstofa Danmerkur. Þorbjörg útskrifaðast með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2015, en með meistaragráðu í lögfræði frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2017.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×