Árásarmaðurinn í Kuopio yfirheyrður Atli Ísleifsson skrifar 3. október 2019 09:34 Lögregla gerði húsleit á heimili mannsins í Sarkiniemi eftir árásina. AP
Lögregla í Finnlandi hefur yfirheyrt manninn sem grunaður er um sverðaárásina í starfsmenntamiðstöð í bænum Kuopio á þriðjudag. Maðurinn er grunaður um að hafa banað einni konu og sært um tíu manns í árásinni. Hann særðist sjálfur alvarlega eftir átök við lögreglu og dvelur nú á gjörgæslu sjúkrahússins í bænum. „Hinn grunaði hefur greint frá atburðum þriðjudagsins, en vegna rannsóknarhagsmuna munum við ekki segja meira frá yfirheyrslunum,“ segir lögreglumaðurinn Olli Töyräs í yfirlýsingu. Hann bætir við að til standi að yfirheyra manninn á ný.Savolax-starfsmenntamiðstöðin er staðsett í verslunarmiðstöðinni Herman, suður af miðborg Kuopio.APKona frá Úkraínu sögð hafa látið lífið Hinn grunaði er finnskur ríkisborgari, fæddur í Finnlandi árið 1994, og var sjálfur nemandi í starfsmenntamiðstöðinni þar sem árásin var gerð. Savolax-starfsmenntamiðstöðin er staðsett í verslunarmiðstöðinni Herman, suður af miðborg Kuopio. Óstaðfestar heimildir finnskra fjölmiðla herma að konan sem lést í árásinni hafi verið frá Úkraínu. Fórnarlömb mannsins voru á aldrinum fimmtán til fimmtíu ára og eru sjö þeirra konur. Maðurinn var vopnaður bæði sverði og skotvopni, en lögregla beitti skotvopnum þegar maðurinn var yfirbugaður. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir manninum síðar í dag.
Finnland Tengdar fréttir Árásarmaðurinn í Kuopio alvarlega særður Maðurinn drap einn og særði tíu í sverðaárás í starfsmenntamiðstöð í finnsku borginni Kuopio í morgun. 1. október 2019 14:12 Einn látinn og níu særðir eftir sverðaárás í finnskri verslunarmiðstöð Finnskir fjölmiðlar segja að óþekktur maður hafi ruðst inn í bekkjarstofu starfsmentamiðstöðvar í Kuopio vopnaður sverði. 1. október 2019 11:21 Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Árásarmaðurinn í Kuopio alvarlega særður Maðurinn drap einn og særði tíu í sverðaárás í starfsmenntamiðstöð í finnsku borginni Kuopio í morgun. 1. október 2019 14:12
Einn látinn og níu særðir eftir sverðaárás í finnskri verslunarmiðstöð Finnskir fjölmiðlar segja að óþekktur maður hafi ruðst inn í bekkjarstofu starfsmentamiðstöðvar í Kuopio vopnaður sverði. 1. október 2019 11:21