Umfjöllun: Ísland - Sviss 83-82 | Hetjuskot Martins björguðu Íslandi

Víkingur Goði Sigurðarson skrifar
Landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen faðmar Martin Hermannsson í leikslok.
Landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen faðmar Martin Hermannsson í leikslok. vísir/bára
Ísland vann í dag frábæran 83-82 sigur á Sviss í undankeppni EM í körfubolta 2021. Martin Hermannson var frábær undir lok leiksins og setti tvö skot á seinustu hálfu mínútu leiksins sem munu seint gleymast. Ísland byrjaði leikinn illa en voru fljótir að komast aftur inn í hann en við tók frábær leikur. 

Sviss voru fljótir að komast stórt yfir 20-8 í byrjun leiks. Eflaust voru einhverjir Íslendingar áhyggjufullir þá en þökk sé þrautsegjunni í íslenska liðinu og tveimur óíþróttamannslegum villum hjá Sviss í fyrsta leikhluta var þetta fljótt að jafnast út. 

Ísland byrjaði annan leikhluta frábærlega og náðu 32-32 þegar leikhlutinn var hálfnaður. Sviss náðu hinsvegar aftur að búa sér til smá forskot en Ísland sleppti þeim aldrei frá sér. Sviss áttu gríðarlega erfitt með að slíta Ísland frá sér allan leikinn og skiptust eiginlega á körfum allan leikinn. 

Íslenska liðið átti erfitt með að hitta fyrir utan í fyrstu þremur leikhlutum leiksins en Jón Axel Guðmundsson fann heldur betur netið í fjórða leikhluta. Jón Axel skoraði 10 stig fyrir Ísland og steig upp þegar Sviss hefðu mögulega getað snúið leiknum sér í hag. 





Íslendingar fagna af innlifun.vísir/bára
Roberto Kovac setti ótrúlegan þrist þegar 39 sekúndur voru eftir af leiknum til að jafna leikinn í stöðunni 79-79. Íslenska landsliðið tók síðan leikhlé og pössuðu að Martin Hermannsson fengi að klára leikinn. Martin dripplaði út skotklukkana og setti síðan skot sem var kannski ef endilega æft en það fór ofan í það var hinsvegar ekki nóg. 

Þegar tólf sekúndum voru eftir brotið á Patrick Baldassarre, leikmanni Sviss, svo hann fékk tvö víti. Eftir að hann klikkaði úr seinna vítinu þá náðu Sviss frákastinu. 

Aftur komust þeir síðan á línuna en það Roberto Kovac sem fékk þann heiður. Roberto setti bæði vítin niður og setti Ísland upp við vegg. 

Ísland tók aftur leikhlé og Martin fékk aftur boltann. Martin náði að búa sér til pláss og einhvern veginn setti hann niður þetta magnaða skot sem vann leikinn. 


Tryggvi skorar án þess að NBA-stjarnan Clint Capela komi neinum vörnum við.vísir/bára
Af hverju vann Ísland?

Ísland setti stóru skotin niður en ekki Sviss það er ekki flóknara en það. Annars var varnarleikurinn góður í dag líka. Í fyrstu þremur leikhlutunum þegar skotin voru ekki að detta var líka gaman að sjá hvað Íslenska liðinu gekk vel að komast í færi nálægt körfunni. 

Hverjir stóðu upp úr?

Það voru margir frábærir í íslenska liðinu í dag. Martin kláraði auðvitað leikinn og Jón Axel átti frábæran fjórða leikhluta.

Tryggvi var frábær undir körfunni bæði í vörn og sókn í dag. Verkefnið sem hann fékk var ekki lítið í NBA-stjörnunni Clint Capela en hann leysti það frábærlega. Pavel Ermolinskij var sömuleiðis geggjaður í dag. Hann var að spila frábærlega varnarlega, fann réttu sendingar og setti skotin sín niður líka. 

Hvað gerist næst?

Ísland fær Portúgal í heimsókn eftir viku og undankeppnin heldur áfram. 

Martin skorar sigurkörfuna.vísir/bára
Martin: Veit ekki alveg hvað ég ætlaði að gera þarna

„Já, maður hefur sett mörg góð skot á ferlinum en ég hef aldrei gert það í Laugardalshöllinni, svo það er virkilega sætt að það hafi tekist,“ sagði Martin Hermannson um lokaskotið gegn Sviss í samtali við Vísi eftir leikinn.

Skotið sem Martin sem setti niður með 20 sekúndur eftir var ekki endilega eins og það er kennt á æfingum. Það fór samt ofaní sem er það sem skiptir máli.

„Já, ég sá að ég var með lítinn mann á mér þannig ég réðst bara á hann og setti létt „hook“ skot yfir hann,“ sagði Martin fyrst í gríni.

„Ef ég á að vera hreinskilinn þá veit ég ekki alveg hvað ég ætlaði að gera þarna, ég var kominn í frekar erfiða stöðu og skotklukkan að renna út þannig ég ákvað að kasta honum upp og blessunarlega datt það.

„Svisslendingarnir eru flott landslið og fá auka sjálfstraust með Capela inn á vellinum, maður sér að þetta er allt annað lið en við mættum fyrir tveimur árum. Leikplanið í dag gekk kannski ekki fullkomlega upp, við ætluðum að leyfa ákveðnum mönnum að skjóta og þeir ákváðu að hitta í dag, sem gerði okkur erfitt fyrir. En þetta var ekkert fullkominn leikur að okkar hálfu, en við erum klárlega að taka skref í rétta átt og það er styrkleiki að geta klárað svona leiki,“ sagði Martin.

Lokasóknirnar voru ekki endilega eins og þær hafi komið beint af æfingasvæðinu en þær heppnuðust hinsvegar. Planið var kannski aðallega bara að Martin fengi að skapa sitt skot.

„Já, leikplanið var annað hvort að ég ætti að koma á hindrunina og fara á körfuna og sjá hvort ég væri opinn, ef ekki þá átti ég að koma til baka og fá hann og bara reyna að gera einhverja töfra. Það heppnaðist vel, ég hef æfi þetta skot oft svona þar sem ég að detta aðeins í burtu og mér líður vel í skoti. Mér leið ekkert ofsalega vel í dag. Ég er að allur að drepast í öklunum og svaf eiginlega ekkert í nótt, með eitthvað í maganum. En ég náði allavega að bjarga andlitinu í lokin.“

Núna er undankeppnin hálfnuð og Ísland er ennþá í bullandi séns þrátt fyrir svekkjandi tap í Portúgal.

„Já algjörlega. Við sjáum það alvega að það geta öll lið unnið alla í þessum riðli og mér finnst við vera sterkara lið en Portúgal svo það er skyldusigur á laugardaginn, að taka þá heima,“ sagði Martin.

Það yrði þá úrslitaleikur að fara til Sviss og klára þá þar, sem verður erfitt, en ég hef alveg trú á að þessi hópur geti gert það.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira