Viðskipti erlent

Bandaríkjamenn bjartsýnir á lausn deilunnar við Kína

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Þeir Mnuchin, Trump og Pence hafa staðið saman gegn Kínverjum í tollastríðinu.
Þeir Mnuchin, Trump og Pence hafa staðið saman gegn Kínverjum í tollastríðinu. Nordicphotos/AFP
Útlit er fyrir að tolla­stríði Bandaríkjanna og Kína ljúki brátt. Donald Trump Bandaríkjaforseti og Xi Jinping, forseti Kína, munu funda saman á G20-fundinum sem fer fram í Japan um helgina og gæti sá fundur skipt sköpum.

Steven Mnuchin, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagðist bjartsýnn í viðtali við CNBC í gær. „Við erum komin svona níutíu prósent áleiðis og ég held það sé vel hægt að klára þetta.“

Ráðherrann er vongóður um að fundurinn lukkist vel. „Við vonumst eftir þeim skilaboðum að Kína vilji koma aftur að borðinu af því að ég held það væri til bóta fyrir bæði kínverskt og bandarískt hagkerfi að koma á jafnvægi í verslun og þannig halda áfram að byggja upp gott samband,“ sagði Mnuchin enn fremur.

Ekki liggur fyrir hvað stendur eftir í viðræðum. Það er að segja hver þessi tíu prósent eru. Viðræðum var slitið í maí. Að því er kom fram í South China Morning Post sakaði Trump-stjórnin Kínverja um að hætta við að samþykkja lykil­atriði á borð við aðgang bandarískra fyrirtækja að kínverskum markaði og verndun bandarískra hugverka. Kínverjar saka Bandaríkin aftur á móti um að breyta kröfum sínum í sífellu.

Wilbur Ross viðskiptamálaráðherra hefur áður sagt að í mesta lagi leiði fundur Xi og Trumps um helgina til þess að viðræður hefjist á ný. Tekur sum sé ekki jafndjúpt í árinni og Mnuchin.

Liu He, varaforsætisráðherra Kína og samningamaður Kínverja, ræddi við Mnuchin í síma á mánudag. Þar sammæltust þeir um að hefja viðræður á ný. Trump og Xi áttu sams konar símtal í síðustu viku þar sem þeir sögðu báðir mikilvægt að halda áfram að ræða saman.

Gao Feng, upplýsingafulltrúi viðskiptaráðuneytis Kína, varaði við áframhaldandi tollastríði fyrir helgi. „Það vinnur enginn tolla­stríð. Ef Bandaríkjamenn eru staðráðnir í að ráðast í einhliða aðgerðir gegn Kína mun það hafa alvarleg áhrif á þeirra eigin hagkerfi og hagsæld þjóðarinnar,“ hafði CCTV eftir Gao.


Tengdar fréttir

Kína svarar með nýjum tollum

Kínverjar tilkynntu í gær um nýja tolla á bandarískar vörur að andvirði sextíu milljarðar dala. Á mánudaginn höfðu Bandaríkjamenn lagt nýja tolla á kínverskar vörur að andvirði 200 milljarðar dala og var því um gagnaðgerðir að ræða í tollastríði ríkjanna tveggja






Fleiri fréttir

Sjá meira


×