Gerðu myndband við lag Joy Division Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar 18. júní 2019 06:15 Mynd af þeim Herði Sveinssyni og Helga Jóhannssyni. Árni Fil
Félagarnir og leikstjórarnir Hörður Sveinsson og Helgi Jóhannsson urðu þess heiðurs aðnjótandi að vera valdir til að leikstýra og skrifa handrit að myndbandi við lag eftir hljómsveitina Joy Division. Það verður að teljast helst til óvenjulegt að vera fenginn til að gera tónlistarmyndband fyrir sveit sem lagði upp laupana fyrir 40 árum. Lagið sem þeir voru beðnir um að vinna myndband við heitir I Remember Nothing. Við fengum að spyrja Hörð nokkurra spurninga um gerð myndbandsins. Hörður segir að meðlimir Joy Division hafi gert samkomulag sín á milli um að ef einhver þeirra myndi hætta eða falla frá, þá myndi sveitin hætta, en í maí árið 1981 svipti söngvari sveitarinnar, Ian Curtis, sig lífi. Restin af meðlimunum stofnuðu síðar sveitina New Order sem naut einnig vinsælda. „Við fengum tölvupóst frá manni sem heitir Warren Jackson, hann er sem sagt listrænn stjórnandi þessa verkefnis. Það var ákveðið að fara af stað með þetta verkefni í tilefni af því að nú eru 40 ár liðin frá því að önnur plata sveitarinnar, Unknown Pleasures, kom út,“ segir Hörður. Warren útskýrði fyrir þeim verkefnið, að gera ætti myndband fyrir hvert lag plötunnar í tilefni af afmælinu. Hann valdi því tíu leikstjóra eða leikstjórateymi eins og í tilfelli Harðar og Helga. „Hann hann gaf okkur algjört frelsi til að vinna þetta eins og við vildum. Hann bauð okkur sem sagt að taka þátt og við sögðum auðvitað já við því. Ég hélt án gríns fyrst að þetta væri eitthvert internet-svindl og hann væri að ljúga að okkur, svona þá smá eins og Nígeríusvindl. Ég beið eftir að hann segði okkur að leggja inn pening á reikninginn hans til að fá að taka þátt,“ segir Hörður hlæjandi.Hér sjást Baltasar Breki Samper og Hilmir Jensson glíma.Nicolas GrangeHann segist hreinlega hafa beðið eftir þannig tölvupósti en hann kom aldrei og þetta reyndist svo allt á rökum reist. „Allt í einu vorum við komnir í samband við Warner sem er plötuútgefandi Joy Division. Við vorum byrjaðir að fá peninga fyrir verkinu og farnir að kasta á milli okkar hugmyndum um það hvernig myndbandið skyldi verða.“ Hann segir það vanann að gera stutt einfalt handrit þegar um stærri verkefni eins og þetta sé að ræða. Hann segir þó að honum hafi fundist alveg magnað hve þeim var treyst til að stjórna þessu alveg sjálfir án mikilla afskipta. „Það er mjög sjaldan að við erum ekki krafðir um svona handrit áður en framleiðsla hefst. Við máttum alveg ráða. En við gerðum það nú samt og sendum handrit á Warren. Hann sagði strax að sér þætti þetta frábært frá okkur og honum litist mjög vel á það sem við sendum honum.“ Myndbandið, sem hefur nú litið dagsins ljós, sýnir tvo menn slást á svörtum sandi.„Við vildum að áhorfendur sjálfir ímynduðu sé hvað væri nákvæmlega í gangi á milli mannanna, við vildum ekkert endilega mata það ofan í fólk hvað myndbandið fjallaði um.“ Hörður segir þá Helga strax hafa hafist handa við að hringja út og fá fólk með þeim í verkið. „Það voru allir nánast strax til í að hjálpa okkur með þetta og við fengum alveg ótrúlega gott fólk til liðs við okkur. Katrín Gunnarsdóttir „kóreografaði“ þetta fyrir okkur. Hákon Sverrisson skaut myndbandið. Brynja Skjaldar sá um búningana. Svo fengum við Baltasar Breka og Hilmi Jensson til að leika í myndbandinu. Þeir stóðu sig eins og hetjur. Við vorum öll dúðuð en þeir þurftu að berjast í kuldanum í tvo daga. Við lentum í alls konar veðri.“Hörður segir veðrið hafi verið erfitt og mjög kalt á tökustað. eNicolas GrangÞeir Breki og Hilmar voru klæddir í næfurþunn hörföt á meðan allir aðrir voru í úlpu, með húfur og í föðurlandi. „Þeir voru alveg magnaðir, þurftu að slást þarna fyrir framan myndavélarnar í átta tíma báða dagana.“ Hörður og Helgi byrjuðu að vinna saman fyrir um sex árum og vinna báðir hjá framleiðslufyrirtækinu Snark. „Ég hafði fram til þessa ekki sett stefnuna á að leikstýra. Ég var beðinn um að gera tónlistarmyndband fyrir hljómsveitina Hjaltalín við lagið I Feel You. Ég vann það myndband með Snorra Eldjárn. Við höfðum hvorugir gert myndband fyrir það en við slógum til. Helgi klippti það myndband. Eitt skipti var ég líka að ljósmynda á setti hjá honum. Svo drógum við okkur einhvern veginn í samstarf. Við áttum líka marga sameiginlega vini.“ Þeir höfðu áður gert myndband fyrir Warner og einnig fyrir nokkra aðra erlenda tónlistarmenn. „Ég hef ekki alveg á hreinu hvernig þeir fundu okkur en við erum bara þakklátir fyrir að fá þetta tækifæri. Kannski er það bara af því að við erum svona kúl,“ segir Hörður hlæjandi. Í vikunni fer Hörður til London þar sem hann tekur þátt í pallborðsumræðum um verkefnið ásamt trommara sveitarinnar, öðrum leikstjórum sem tóku þátt og Orian Williams, sem framleiddi myndina Control sem fjallar um hljómsveitina.
Mest lesið „Jú, ég sá einhverja fræga“ Lífið „Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ Tíska og hönnun Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu Lífið Hugljúft en stutt gaman Gagnrýni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Lífið Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Lífið Klæddist fimm kílóum af mannahárum Tíska og hönnun Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Lífið Óþekkjanleg á Óskarnum Tíska og hönnun Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu „Jú, ég sá einhverja fræga“ Villi Netó skellti hráu eggi með skurninni upp í sig Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Sigríður Dögg komin í ömmuklúbbinn Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Fimmta dóttirin skírð Ozzy Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Sjá meira