Erlent

Tengdasonur Trump segir hann ekki rasista

Kjartan Kjartansson skrifar
Kushner er með mörg verkefni á sinni könnu, þar á meðal að stilla til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs.
Kushner er með mörg verkefni á sinni könnu, þar á meðal að stilla til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs. AP/Jacquelyn Martin
Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta, fullyrti að tengdafaðir hans væri ekki rasisti en vildi ekki svara því hvort að samsæriskenning hans um Barack Obama væri það. Í fátíðu sjónvarpsviðtali varði Kushner stefnu Trump í flóttamannamálum og efaðist um að Palestínumenn væru færir um að ráða sér sjálfir.

Kushner, sem er einn helsti ráðgjafi Trump forseta, átti í vök að verjast í viðtali við Jonathan Swan, blaðamann bandarísku fréttavefsíðunnar Axios, á HBO-sjónvarpsstöðinni sem birtist í gær. Hann var meðal annars spurður út í ásakanir um að Trump sé rasisti og hvort hann hefði séð eitthvað frá tengdaföður sínum sem gæti talist rasismi.

„Svarið er nei, alls ekki. Þú getur ekki verið ekki rasisti í 69 ár og boðið þig fram til forseta og þá verið rasisti. Það sem ég segi er að þegar margir demókratar kalla forsetann rasista eru þeir að gera fólki sem þjáist vegna raunverulegs rasisma í þessu landi óleik,“ svaraði Kushner.

Blaðamaðurinn bar þá samsæriskenninguna um að Barack Obama, forveri Trump í embætti, væri ekki raunverulega fæddur í Bandaríkjunum og því ekki lögmætur forseti undir Kushner. Trump hélt þeirri kenningu á lofti lengi og er talinn hafa lagt grundvöll að stjórnmálaframa sínum með henni.

„Sjáðu til, ég tók í raun og veru ekki þátt í því,“ sagði Kushner um hvort að kenningin væri rasísk.

„Ég veit að þú varst það ekki en var hún rasísk?“ spurði Swan enn.

„Eins og ég sagði, þá tók ég ekki þátt í því.“

„Ég veit að þú varst það ekki. Var hún rasísk?“ þráaðist Swan enn við.

„Sjáðu til, ég veit hver forsetinn er og ég hef ekki séð neitt í honum sem er rasískt. Svo aftur, ég tók ekki þátt í því,“ sagði Kushner.

Ráðgjafinn gaf sömu svör þegar Swan spurði hann hvort hann hefði óskað þess að Trump hefði látið vera að dreifa falskri samsæriskenningu um Obama og svaraði því ekki hvort að kosningaloforð hans um að banna múslimum að koma til Bandaríkjanna hafi verið fordómafullt. Orðaskiptin má sjá hér.

Ekki færir um að ráða sér sjálfir

Á meðal aragrúa verkefna sem Trump hefur falið tengdasyni sínum er að stilla til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs. Til hefur staðið að kynna áætlun Kushner þess efnis á næstunni en verulegar efasemdir eru þegar uppi um að hún muni njóta stuðnings. Washington Post sagði frá því í gær að Mike Pompeo, utanríkisráðherra, hefði sagst skilja að fólki teldi áætlunina hygla Ísrael.

Í viðtalinu við Axios sagðist Kushner telja að Palestínumenn ættu að hafa sjálfsákvörðunarrétt en dró í efa að þeir væru færir um að stjórna sér sjálfir.

„Vonin er að með tímanum verði þeir færir um að ráða sér sjálfir,“ sagði Kushner.

Kushner neitaði í fyrsta skipti afdráttarlaust að hann hefði rætt við Trump forseta um öryggisheimild hans í Hvíta húsinu. Bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá því að Trump hafi hlutast persónulega til um að Kushner fengi fulla öryggisheimild aftur eftir að hann var sviptur henni tímabundið í fyrra.

Þá gerði hann lítið úr umdeildum fundi sem hann, elsti sonur Trump og þáverandi kosningastjóri áttu með rússneskum lögmanni í Trump-turninum í júní árið 2016. Þeim hafði verið lofað skaðlegum upplýsingum um Hillary Clinton, mótframbjóðanda Trump í forsetakosningunum. Afsakaði Kushner sig með annríki og að hann hafi ekki vitað um efni fundarins þrátt fyrir að vísað hefði verið til Rússlands í tölvupóstinum sem boðaði hann á fundinn. 

Gaf hann ekki skýr svör um hvort að hann myndi tilkynna alríkislögreglunni FBI ef hann fengi sambærilegt boð frá Rússum fyrir kosningarnar á næsta ári.

„Ég veit það ekki. Það er erfitt að eiga við tilgátur en raunveruleikinn er sá að við fengum ekki neitt safaríkt,“ sagði Kushner.

Vill bíða eftir niðurstöðum rannsóknar á morði Khashoggi

Kushner lenti einnig í vörn þegar tengsl hans við Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, í viðtalinu. Bandaríska leyniþjónustan telur að Salman hafi skipað fyrir um morðið á Jamal Khashoggi, sádiarabíska blaðamanninum, á ræðisskrifstofu Sáda í Istanbúl í október.

Vildi Kushner ekki svara því hvort að hann teldi Salman ábyrgan fyrir morðinu og sagðist enn bíða eftir niðurstöðu rannsóknar. Kushner hefur myndað náin persónuleg tengsl við krónprinsinn undanfarin ár.

„Sjáðu til, þetta er hræðilegur hlutur sem átti sér stað. Þegar við höfum allar staðreyndirnar munum við marka stefnu okkar en það yrði á borði utanríkisráðuneytisins að framfylgja stefnu okkar,“ sagði Kushner spurður að því hvort hann tæki undir kröfu unnustu Khashoggi um að Sádar greini frá því hvar líkamsleifar hans eru niður komnar.

Varðandi innflytjenda- og flóttamannastefnu Trump sagði Kushner að fjöldi flóttamanna sem Bandaríkin tækju við skipti ekki máli í ljósi umfangs vandans í heiminum. Trump-stjórnin hefur fækkað verulega flóttamönnum sem Bandaríkin taka við.

„Ég held að féð sem þú getur varið í að hjálpa flóttamönnum að koma sér aftur fyrir í heimalöndum sínum og takast á við neyðaraðstoð hafi mikil áhrif,“ sagði ráðgjafinn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×