Kom kajakræðara til bjargar: „Það komst ekkert annað að en að ná til mannsins“ Atli Ísleifsson skrifar 15. maí 2019 23:17 Bjartur Snær Sigurðsson telur að hann hafi verið um korter að róa að manninum. Sigurður Matthíasson „
Það var ekkert annað nema lukka að við tókum eftir honum þarna í sjónum,“ segir Bjartur Snær Sigurðsson, tvítugur íbúi í Grafarvogi sem kom kajakræðara í sjónum til bjargar fyrr í kvöld.Bjartur Snær á heima við Barðastaði (rauða merkingin niðri til vinstri). Rauða merkingin á hafi var þar sem ræðarinn var í vanda. Bjartur Snær og kajakræðarinn fóru svo á land á Geldinganesi (efsta rauða merkingin).Bjartur segir föður sinn hafa séð kajak á hvolfi úti á sjó þar sem hann horfði út um gluggann í stofunni á heimili þeirra við Barðastaði í Grafarvogi. „Við sjáum manninn ekki alveg strax en sjáum hann svo í kíkinum. Við hringjum í lögregluna, en ég ákveð þá að fara út á kajakinum mínum, enda ljóst að ég yrði fljótari á staðinn en þeir.“Skelfur Bjartur Snær segist hafa verið kominn í þurrgallann og vestið á um þremur mínútum og svo byrjað að róa út. Hann telur sig hafa verið um korter að róa, enda maðurinn í talsverðri fjarlægð frá landi. „Ég kem að honum og hann skelfur bara. Ég skildi ekki alveg hvað hann var að segja og hann rétt nær að halda sig í kajakinn minn. Ég reri svo með hann upp á Geldingarnes, um átta hundruð metra leið.“Þurrgallinn fullur af vatni Bjartur segir að að þurrgalli mannsins hafi verið fullur af vatni. „Ég hjálpaði honum úr honum og lét hann fá fötin mín sem ég var í undir þurrgallanum. Við bíðum svo í fimm, tíu mínútur þar til slökkviliðið var mætt á staðinn,“ segir Bjartur. Hann kveðst ennfremur hafa fengið upplýsingar um að það sé í lagi með kajakræðarann. „Það var gríðarlega mikill léttir að heyra það.“Sigurður Matthíasson
Reykjavík Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira