Lífið

Stóra stundin rennur upp hjá helstu keppinautum Hatara

Stefán Árni Pálsson í Tel Aviv skrifar
John Lundvik er með mikinn meðbyr um þessar mundir og þykir mjög góður á sviðinu.
John Lundvik er með mikinn meðbyr um þessar mundir og þykir mjög góður á sviðinu.
Í kvöld fer fram seinni undanriðilinn í Eurovision og verða flutt 18 lög frá jafnmörgum löndum í Expo-höllinni í Tel Aviv. Tíu lönd komast í úrslit og bætast þá við þau tíu sem komust áfram á þriðjudaginn og stóru þjóðirnar fimm auk Ísrael.

Seinni riðillinn þykir mun sterkari en fyrri riðillinn sem Hatari negldi á þriðjudagskvöldið. Aðeins tveimur lögum úr okkar riðli er spáð á topp tíu listann samkvæmt helstu veðmálasíðum Evrópu. Það eru framlög Ástrala og Íslands.

Á fyrrnefndum topp tíu lista eru sex lög sem Evrópa fær að sjá í fyrsta skipti í kvöld í beinni útsendingu frá Tel Aviv. Þetta skiptir miklu máli og þá sérstaklega fyrir Hollendinga og Svía. Hvort þær þjóðir gefi hreinlega í eða falli niður listann.

Ítölum og Frökkum er spáð fínu gengi en þær þjóðir koma fyrst fram á laugardagskvöldið, þar sem um er að ræða stofnþjóðir Eurovision sem eiga alltaf eitt sæti.

Talið er að línurnar skýrist til muna eftir kvöldið og telja sérfræðingar hér ytra að Svíinn John Lundvik gæti skotist fram úr Hollendingnum sem hefur verið í efsta sæti veðbankanna í margar vikur.

Svona er spá veðbankanna um úrslitin í Eurovision þessa stundina:

1. Holland

2. Svíþjóð

3. Ástralía

4. Rússland

5. Ísland

6. Ítalía (koma fyrst fram á laugardaginn)

7. Aserbadjan

8. Frakkland (koma fyrst fram á laugardaginn)

9. Sviss

10. Malta

Veðbankaspáin.
Þessar þjóðir koma fram í kvöld og í þessari röð:

Armenía

Írland

Moldóvía

Sviss

Lettaland

Rúmenía

Danmörk

Svíþjóð

Austurríki

Króatía

Malta

Litháen

Rússland

Albanía

Noregur

Holland

Norður-Makedónía

Aserbadjan

Dómararennsli fór fram í gærkvöldi og hafa dómnefndir hverrar þjóðar greitt sín atkvæði. Þau vega til jafns við atkvæði úr símakosningu sem opnað verður fyrir þegar öll atriðin hafa verið flutt í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×