Skoðun

Dagur umhverfisins

Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Gleðilegt sumar! Dag umhverfisins ber að þessu sinni upp á sumardaginn fyrsta. Þannig rennur saman fögnuður yfir björtum sumarkvöldum og umhverfismálum sem varða framtíð okkar allra. Þennan dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson en hann var fyrstur Íslendinga til að nema náttúruvísindi og orðaði meðal annars þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun.

Loftslagsmál og náttúruvernd

Í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu er nú unnið hörðum höndum að aðgerðum vegna loftslagsbreytinga. Meðal annars hefur verið unnið að mikilvægum breytingum á loftslagslögum og nýlega var Loftslagsstefna Stjórnarráðsins kynnt en hún mun hafa margfeldisáhrif út í samfélagið. Fleiri verkefni verða kynnt í vor.

Sérstakt átak um friðlýsingar er í fullum gangi en eitt af mínum fyrstu verkum sem ráðherra var að koma á fót teymi milli umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Umhverfisstofnunar sem vinnur nú að því að friðlýsa svæði sem eru í verndarflokki rammaáætlunar, svæði á eldri náttúruverndaráætlunum og svæði sem eru undir álagi ferðamanna. Á sama tíma vinnur þverpólitísk nefnd með fulltrúum allra flokka að undirbúningi að stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, í samræmi við stjórnarsáttmálann.

Einnig er unnið jafnt og þétt að mikilli uppbyggingu innviða til verndar náttúru landsins og menningarsögulegum minjum vítt og breitt um landið. Nýlega var kynnt um úthlutun úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verkefna á yfir 100 stöðum um allt land og þau tímamót hafa orðið að stóraukin áhersla er lögð á landvörslu.

Margt annað gleðilegt má nefna á Degi umhverfisins: Ríkisstjórnin hefur samþykkt að Ísland fullgildi Landslagssamning Evrópu; barátta gegn plastmengun, neyslu og sóun hefur verið tekin föstum tökum; og ný heildarlög um skipulag haf- og strandsvæða, landgræðslu og skógrækt munu marka vatnaskil.

Það er einstakt að finna þann mikla áhuga sem er á umhverfismálum í samfélaginu. Við í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu óskum landsmönnum öllum innilega til hamingju með daginn.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×