Sport

Esjan og „Steinninn“ bjóða CrossFit fólkið velkomið til Íslands

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Esjan og stærstu CrossFit stjörnur Íslands,
Esjan og stærstu CrossFit stjörnur Íslands, Mynd/Samsett/reykjavikcrossfitchampionship
Keppendur á alþjóðlega CrossFit mótinu sem fram fer á Íslandi um komandi helgi er ráðlagt að koma vel útbúin til Íslands. Ein af ástæðunum er fyrsta grein mótsins á föstudaginn kemur.

Reykjavik CrossFit Championship fer fram frá 3. til 5. maí næstkomandi og það er ljóst að mótið byrjar á alíslenskri grein.

Fyrsta greinin verður fjallganga upp á Esju en keppendur munu þá keppast við að komast eins fljótt og þeir geta upp að Steini.

Sá sem er fyrstur upp að Steini vinnur greinina og verður því strax kominn með hundrað stig í baráttunni um sigurinn á mótinu og laust sæti á heimsleikunum í ágúst. Þrjú sæti á heimsleikunum eru í boði á mótinu eða fyrir sigurvegar í karlaflokki, kvennaflokki og liðakeppni.

Þetta er í raun ekki fjallganga heldur frekar fjallahlaup. CrossFit-fólkið verður því að spretta úr spori og bruna upp Esjuna.

Forráðamenn Reykjavik CrossFit Championship vöruðu íþróttafólkið við um leið og þeir tilkynntu þessa grein á Instagram-síðu mótsins.

„Til allra keppenda. Þið verðið að átta ykkur á því að þetta er Ísland og nafn landsins gefur góða vísbendingu. Veðrið getur breyst fljótt og það er engin leið til að spá fyrir um það hvort að það verði heitt, ískalt, sól, skýjað, rok, logn, þurrt, rigning, snjókoma eða allt fyrrnefnt. Komið því vinsamlegast með rétt föt og skóbúnað með ykkur,“ segir í tilkynningunni.

Hér fyrir neðan má sjá meira um þessa fyrstu grein Reykjavik CrossFit Championship.



 
 
 
View this post on Instagram
WOD #1 ANNOUNCEMENT Those who thought that this would just be an easy, dull and uninspiring competition are in for a rude awakening The first WOD of the @ReykjavikCrossfitChampionship is a proper Icelandic experience. A run on Mountain Esja which overlooks the Reykjavik area and the Faxafloi bay. This route is a popular hike, but this WOD is not a hike. This is a run. The competitors start at the foot of the mountain and need to run the trail up the mountain all the way to the “Steinn”, which is a landmark just below the very top of the mountain. The first to reach the “Steinn” wins the event To all competitors.  Please be mindful that this is Iceland. The clue is in the name. The weather can shift quickly and there is no way to predict if it will be hot, freezing, sunny, cloudy, windy, calm, dry, rainy, snowy or all of the above. Please bring suitable clothing and shoes#RCC2019 #WOD1 #ReykjavikCrossfitChampionship @iseyskyr @roguefitness @foodspring_athletics @66north @inspiredbyiceland

A post shared by ReykjavikCrossFitChampionship (@reykjavikcrossfitchampionship) on Apr 11, 2019 at 11:22am PDT






Tengdar fréttir

„Þú ert Katrín F-in Davíðsdóttir“

Hún er tvöfaldur meistari á heimsleikunum í CrossFit en segist ekki geta verið án tveggja manna í baráttu sinni fyrir því að verða aftur hraustasta kona heims.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×