Innlent

Þakk­læðning á hárri byggingu á Kefla­víkur­flug­velli að fjúka

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Mynd úr safni
Mynd úr safni
Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum hafa sinnt verkefnum í kvöld óveðursins sem nú gengur yfir landið suðvestanvert

Gul veðurviðvörun er í gildi hjá Veðurstofu Íslands fyrir sunnan- og vestanvert landið, auk miðhálendisins, fram á miðja nótt en síðan mun veðrið ganga niður. Gul veðurviðvörun er svo áfram í gildi fyrir suður- og Suðausturland þar til á miðnætti annað kvöld. Bæði vegna vindhraða og vegna mikillar rigningar.

Á tíunda tímanum barst beiðni um aðstoð til björgunarsveita á Suðurnesjum vegna þaks á hárri byggingu inni á Keflavíkurflugvelli. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, staðfesti að björgunarsveitarfólk væri á leið á vettvang og hafði ekki frekari upplýsingar á þessari stundu.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er þakið um tvö hundruð fermetrar og eru verktakar á svæðinu, sem björgunarsveitarmenn koma til með aðstoða með að ná tökum á aðstæðum.

Á höfuðborgarsvæðinu hafa björgunarsveitir sinnt um tíu verkefnum, þá aðallega í Hafnarfirði. Tilkynningar hafa borist um að girðingar, þakklæðningar og fiskiker hafi tekist á loft.

Eins og fram hefur komið í fréttum í dag hefur stormurinn haf mikil áhrif á samgöngur og var til að mynda öllu flugi um Keflavíkurflugvöll aflýst eftir hádegi í dag og fram á nótt. Þá var flugi um Reykjavíkurflugvöll einnig aflýst seinni partinn. Vegagerðin hefur svo varað vegfarendur við snörpum viðhviðum sem geta orðið, annars vegar á Vesturlandsvegi undir Hafnarfjalli og hins vegar á Reykjanesbraut en auk þess var gert ráð fyrir ausandi rigningu á þeim slóðum.

Þegar þetta er skrifað er meðal vindhraði á Reykjanesbraut um tuttugu metrar á sekúndu en slær í þrjátíu metra í stærstu kviðunum. Á Vesturlandsvegi undir Hafnarfjalli er meðal vindraði um sextán metrar en slær í þrjátíu og sex metra í verstu kviðunum.

 

Uppfært kl. 22:47

Fréttastofan fékk frekar upplýsingar um að ekki væri þak í heild sinni að fjúka byggingunni heldur þakklæðnig. Var fyrirsögn breytt í samræmi við það.

Uppfært klukkan 23:57:

Um er að ræða þak stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar og vinnur her mann að því að bjarga því sem bjargað verður. Starfsmenn Isavia, björgunarsveita, Íslenskra aðalverktaka og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar eru að störfum. Öllum verkefnum á höfuðborgarsvæðinu er nú lokið. 


Tengdar fréttir

Flugi til og frá Reykjavíkurflugvelli aflýst

Flugi flugfélagsins Air Iceland Connect til og frá Reykjavíkurflugvelli hefur verið aflýst vegna veðurs. Áður hafði flugi frá Keflavíkurflugvelli í dag verið aflýst en komum sem áætlaðar voru síðdegis hafði verið frestað til kvölds.

Hvass­viðrið setur flug­sam­göngur enn úr skorðum

Hvassviðrið sem hrjáði Keflavíkurflugvöll í gærkvöld heldur áfram að valda vandræðum. Vegna veðurspár hefur verið gripið til þess ráðs að aflýsa seinni-parts flugi til Bandaríkjanna og Evrópu.

Biður farþega um að sýna biðlund vegna flugtafa

Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir allt kapp vera lagt á það að koma farþegum á áfangastaði og reyna leysa úr þeirri stöðu sem uppi er eftir að tugum flugferða var frestað vegna veðurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×