Körfubolti

Upphitun fyrir úrslitakeppnina: Eyðileggja Þórsarar veturinn fyrir Stólunum?

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hvað gera Stólarnir?
Hvað gera Stólarnir? vísir/vilhelm
Tindastóll hélt þriðja sætinu í Domino´s-deild karla í körfubolta með stæl í lokaumferðinni þegar að liðið valtaði yfir Keflavík á heimavelli og mætir því Þór Þorlákshöfn í átta liða úrslitum en fyrsti leikur liðanna fer fram í kvöld á Króknum.

Veturinn hefur farið upp og niður hjá Stólunum sem voru besta liðið fyrir áramót en þeir misstu flugið á nýju ári og hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir spilamennsku sína og leikmannaveltu.

Nú byrjar nýtt mót og er spurning hvort að vel samsett og vel þjálfað lið Þórs geti endanlega eyðilagt veturinn fyrir Stólunum sem eru búnir að leggja gríðarlega mikið í liðið sitt og ætla sér sigur í úrslitakeppninni.

Hér að neðan má sjá umræðu Domino´s-Körfuboltakvölds um viðureignina úr sérstökum upphitunarþætti fyrir úrslitakeppnina sem var á dagskrá í gærkvöldi.

Klippa: Körfuboltakvöld: Tindastóll vs Keflavík

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×