Innlent

Eldur á leikvelli á Seltjarnarnesi

Andri Eysteinsson skrifar
Eldurinn kviknaði af gróðri og breiddist út í nærliggjandi rusl.
Eldurinn kviknaði af gróðri og breiddist út í nærliggjandi rusl. Mynd/Aðsend
Eldur kom upp á leikvellinum við Hofgarða á Seltjarnarnesi, skömmu eftir klukkan 15. Að sögn slökkviliðsins kom eldurinn upp í gróðri og breiddist í nærliggjandi rusl.

Engin hætta var á ferðum og aðgerðir slökkviliðs voru minniháttar. Einn bíll var sendur á staðin og var eldurinn snögglega slökktur.

Eldurinn varð við rafmagnsbúr og mun Orkuveitan mæta á vettvang og tryggja að í lagi sé með rafmagnsbúrið.

Að sögn slökkviliðsins er líklegt að eldurinn hafi komið upp eftir að einhverjir aðilar hafi verið að leika sér með eldspýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×