Þreifa fyrir sér um að fresta útgöngudagsetningunni Kjartan Kjartansson skrifar 8. janúar 2019 09:47 Veggmynd af fána Evrópusambandsins í enska bænum Dover. Vísir/EPA
Breska dagblaðið The Telegraph heldur því fram að ríkisstjórn Theresu May forsætisráðherra þreifi nú fyrir sér hjá fulltrúum Evrópusambandsins um að fresta útgöngunni af ótta við að útgöngusamningur náist ekki fyrir áætlaðan tíma. Bretar ganga að óbreyttu úr Evrópusambandinu 29. mars. Erfiðlega hefur hins vegar gengið að ná samningi um hvernig samskiptum og viðskiptum skal háttað eftir þann tíma. Atkvæðagreiðslu um útgöngusamning May við ESB var frestað í desember þegar ljóst var að þingmenn myndu kolfella hann. Telegraph vitnar til þriggja ónefndra evrópskra embættismanna um að breskir embættismenn hafi leitað hófanna í Evrópu um að framlengja 50. grein Lissabonsáttmálans sem kveður úr um skilyrði úrsagnar úr sambandinu. May forsætisráðherra hefur ítrekað hafnað því að fresta útgöngunni, að sögn Reuters. Hún hefur hins vegar einnig varað við því að í óefni stefni um Brexit ef þingmenn hafna útgöngusamningi hennar. Fulltrúar ríkisstjórnarinnar hafna því alfarið að til standi að fresta útgöngunni. „Við yfirgefum Evrópusambandið 29. mars,“ segir Stephen Barclay, Brexit-ráðherra ríkisstjórnarinnar við Telegraph.
Bretland Brexit Evrópusambandið Tengdar fréttir Æfa viðbrögð við Brexit án samnings Lest 89 flutningabíla ók í gær tvær ferðir frá hinum yfirgefna Manston flugvelli í Kent til hafnarinnar í Dover. 8. janúar 2019 08:00 Theresa May segir Brexit jafnvel í hættu Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir að útgangan úr Evrópusambandinu sé í hættu ef þingmenn styðji ekki Brexit-samkomulag hennar. 7. janúar 2019 07:30 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira
Æfa viðbrögð við Brexit án samnings Lest 89 flutningabíla ók í gær tvær ferðir frá hinum yfirgefna Manston flugvelli í Kent til hafnarinnar í Dover. 8. janúar 2019 08:00
Theresa May segir Brexit jafnvel í hættu Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir að útgangan úr Evrópusambandinu sé í hættu ef þingmenn styðji ekki Brexit-samkomulag hennar. 7. janúar 2019 07:30