Vorspá Siggu Kling – Meyjan: Þú sérð einföldu hlutina í öðru ljósi Sigga Kling skrifar 3. maí 2019 09:00
Elsku myndarlega og heillandi Meyjan mín, þú átt eftir að komast upp með allt sem þú tekur þér fyrir hendur í sumar og verður með stjörnur í augunum og sjálfsmyndin byggist upp og verður betri með hverjum mánuði sem líður, bæði í sambandi við karakter og starfsframa. Það eina sem þú þarft að hugsa er að allt sem þú ætlar að gera og framkvæma þarftu að gera sjálf. Númer eitt, tvö og þrjú ert það þú sem munt bera hitann og þungann af því sem gerist á næstu mánuðum og koma í mark í lífsmaraþoninu þínu með ljós á öllum kyndlunum. Þú þarft að vera á tánum yfir því sem þú vilt að gerist og til hamingju elskan mín, þú færð það! En eins sterk og þú ert þá er oft stuttur í þér þráðurinnn og þú átt erfitt með að umbera leiðindi því þú ert viðkvæmari en þú heldur.Hlýja og friður fæðist með sumrinu og keppnisskapið verður 100%, en ef orkuleysi er að deyfa andann þinn og hindra lífið þá þarftu að rannsaka það í smáatriðum hversvegna þessi orkuskortur er því þú getur bætt úr þessu öllu saman og ef þú leitar muntu finna, það er svarið við spurningu þinni. Þú sérð einföldu hlutina í öðru ljósi og finnur svo sannarlega að þetta er sumarið þitt. Þú ert búin að ná miklum árangri undanfarið, þarft bara að læra að dvelja í því að vera ánægður með sjálfan þig og klappa þér á bakið fyrir þeim framförum sem nú þegar er náð. Það er svo margt sem þig langar að gera en þú þolir ekki endurtekningar svo það er undir þér komið að bæta inn einhverju nýju ef þú hefur einskæran áhuga á því, vegna þess að þú ert akkúrat undir orkunni að það mun takast. Þú átt eftir að vaxa og verða sterkari með hverjum degi sem líður og það verður umbylting á þínum tilfinningum. Júpíter svífur yfir vötnum, skrifar inn heppni og fjárhagslegan ávinning sem þú ættir að nota til að dekra við þig elsku hjartað mitt því það er svo mikilvægt að láta sér líða vel í ástinni, og þú ert í fyrsta sæti. Knús og kossar, Sigga Kling.Meyja 23. ágúst - 22. septemberManuela Ósk fyrirsæta, 29. ágústEdda Björgvinsdóttir leikkona, 13. septemberBeyoncé Knowles söngkona, 4. septemberGylfi Þór Sigurðsson, fótboltamaður, 8. septemberEiður Smári Guðjohnsen, fótboltamaður, 15. septemberSigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, 7. septemberAnnie Mist crossfittari, 18. septemberLogi Pedro Stefánsson tónlistarmaður, 29. ágústSema Erla Serdar, baráttukona, 4. septemberRaggi Bjarna, söngvari, 22. septemberSkúli Mogensen, athafnamaður, 18. septemberAri Eldjárn, grínisti, 5. septemberSara Sigmundsdóttir, Crossfit-stjarna, 12. septemberElín Margrét Böðvarsdóttir, fréttakona, 27. ágúst
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Lífið Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Lífið Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Fleiri fréttir Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum Sjá meira