Ósáttur með að mega ekki breyta nafninu sínu í Tottenham Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júlí 2019 06:00 Tottenham er vinsælt víða um heim, m.a. í Svíþjóð. vísir/getty
David Lind, 39 ára Svíi, er afar ósáttur með að mega ekki breyta nafninu sínu í Tottenham. Lind sendi inn beiðni um að fá að breyta nafninu sínu í Tottenham sem er uppáhalds lið hans í enska boltanum. Þeirri beiðni var hins vegar hafnað. „Þetta er mjög leiðinlegt. Þú mátt heita nokkurn veginn hvað sem er í Svíþjóð en ekki Tottenham. Það er ekkert eðlilegra að heita Newcastle, Arsenal eða Liverpool,“ sagði Lind. Máli sínu til stuðnings benti hann á að í Svíþjóð er maður sem ber nafnið Jacob Guiseley Åhman-Dahlin eftir enska utandeildarliðinu Guiseley. Nafnalögin í Svíþjóð voru hert fyrir tveimur árum og því erfiðara fyrir menn eins og Lind að taka upp ný og sérstök nöfn. Í frétt The Guardian kemur fram að um 60 manns í Svíþjóð beri nafnið Bajen sem er gælunafn sænska félagsins Hammarby. Þrátt fyrir að hafa fengið þvert nei við beiðni sinni um að heita Tottenham gefst Lind ekki upp og ætlar að áfrýja ákvörðuninni.
Enski boltinn Svíþjóð Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira