Prestur bjargaði föður brúðarinnar þegar jakkinn varð alelda í miðri athöfn Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. október 2019 11:49 Séra Karen við athöfnina í Þingvallakirkju í gær. Til hægri má sjá möppuna góðu, sem sér lítið á en stybban leggur þó af henni. Mynd/Samsett
Snör viðbrögð Karenar Lindar Ólafsdóttur prests við hjónavígslu í Þingvallakirkju í gær komu í veg fyrir að ekki fór verr þegar jakki föður brúðarinnar varð alelda í miðri athöfn. Þá hafi flíspeysa, sem maðurinn klæddist af tilviljun innanundir jakkanum, forðað honum frá alvarlegum áverkum. Brúðhjónin, sem eru frönsk og þýsk, komu hingað til lands ásamt fjölskyldum sínum til að gifta sig. Karen segir að mikið hafi verið lagt upp úr skreytingum, komið hafi verið með þurrkuð blóm og kerti tendruð í kirkjunni. Athöfnin hófst svo upp úr hádegi í gær. „Allt gengur vel og þau eru svo að fara með heitin til hvors annars á rosalega tilfinningaþrunginni stundu þegar ég finn allt í einu lykt. Ég leit í kringum mig og sá ekki neitt en öll kerti virtust í lagi, þau voru bara tvö eða fjögur,“ segir Karen.Hafði greinilega logað í svolítinn tíma Þegar annað brúðhjónanna hafði klárað heitin og hitt hafist handa varð Karen litið upp og sá þá glampa í einum glugga kirkjunnar. „Ég hugsaði að þetta væri skrýtið vegna þess að það var engin sól úti. Af einhverri tilviljun ákvað ég að hlaupa að glugganum og þegar ég kem þangað sé ég að jakki mannsins er alelda. Hann hélt á myndbandsupptökuvél og hafði greinilega logað í svolítinn tíma. Eldurinn var kominn upp bakið á honum og að hálsmálinu,“ segir Karen. Beitti prestsmöppunni Hún sá strax að ekki væri hægt að fá vatn í kirkjuna í tæka tíð og leitaði því annarra leiða til að slökkva eldinn. Sérstaklega þar sem faðir brúðarinnar byrjaði þá strax að fara úr jakkanum, sem Karen leist ekki á – svona innan í timburkirkju. „Sem betur fer hafði ég fengið veglega leðurmöppu þegar ég vígðist til prests fyrir blöðin mín við athafnir. Þannig að ég tók möppuna og lamdi manninn eins og ég gat, slökkti þannig eldinn og það er alveg stæk brunalykt. Mappan mín er líklega ónýt, leðrið er alveg brunnið,“ segir Karen.Þingvallakirkja var reist árið 1859 og er öll úr timbri. Það var því mikil mildi að ekki fór verr þegar eldurinn kviknaði við athöfnina í gær.Vísir/Vilhelm„Ég talaði svo strax við þjóðgarðsvörðinn og lét þau vita að þau hefðu í leyfisleysi kveikt á kertunum og þetta hefði gerst. Þannig að við munum þurfa að herða á reglunum varðandi þetta.“Flíspeysan bjargaði málunum Af einskærri tilviljun var maðurinn klæddur í flíspeysu innanundir jakkanum, sem virðist hafa varið hann eldinum. „Pabba brúðarinnar var svo kalt að hann var í flíspeysunni. Flíspeysan bráðnaði við jakkann og skyrtuna en hann slapp alveg. Ef hann hefði ekki verið með flíspeysuna sína á milli þá hefði hann líklega brunnið þannig að við hefðum þurft að kalla út þyrlu. Jakkinn fuðraði bara upp.“ Karen segir að hún hafi ákveðið að taka létta nálgun á aðstæðurnar eftir að öruggt var að maðurinn væri heill á húfi. „Ég blés á öll kerti og sá til þess að engin glóð væri eftir. Og sagði svo að þetta væri í fyrsta sinn sem heitin hafa verið svo heit að það hafi „actually“ kviknað í einhverjum. Svo héldum við bara áfram og þau giftu sig.“ Þakkaði fyrir lífbjörgina Brúðhjónin, fjölskylda þeirra og aðrir gestir hafi þó bersýnilega komist í töluvert uppnám. „Ég tók stjórnina í aðstæðunum, róaði alla niður og kláraði athöfnina því þau eru auðvitað búin að leggja mikla vinnu í þennan dag, en svo var áfallið að hellast yfir þau þegar athöfninni var lokið og þegar þau sáu skemmdirnar á jakkanum. Pabbi brúðarinnar kom svo nokkrum sinnum til mín og faðmaði mig og þakkaði mér fyrir að hafa bjargað lífi sínu.“Er þetta það svakalegasta sem þú hefur lent í við prestsstörfin?„Maður hefur auðvitað lent í alls konar. Fólk hefur verið fast í rútu einhvers staðar, eitthvað gleymist eða móðir brúðarinnar dettur í klettum en þetta er í fyrsta skipti sem kviknar í einhverjum,“ segir Karen. „Sem betur fer er þetta saga sem við getum lært af og er svolítið fyndin. En þetta hefði getað verið allt önnur saga ef hann hefði slasast.“
Trúmál Þingvellir Mest lesið Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Innlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Innlent Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Innlent Fleiri fréttir Heitur matur í boði á ný Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Lögreglan lokaði fyrir umferð í Hlíðarfjall Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Kjósa um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa „Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Skellur fyrir Trump „Helvítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Leita vitna að atviki í Bolungarvíkurgöngum Rannsaka tilefnislausa líkamsárás í miðbænum Loka sundlaugum vegna loðnuvertíðar Ballið byrjað í Bláfjöllum Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Sjá meira