Fagnar því að geta brosað á nýjan leik Samúel Karl Ólason skrifar 30. nóvember 2018 12:26 Cameron Underwood segir lækna hafa gefið sér nýtt líf. Getty/Monica Schipper
Cameron Underwood hefur fengið nýtt andlit eftir að hann reyndi að svipta sig líf fyrir tveimur árum. Hann missti nefið, mestan hluta neðri kjálkans, og allar tennur nema eina þegar hann beindi byssu sinni að sjálfum sér en nú segir hann lækna hafa gefið sér nýtt líf. Underwood fagnar því sérstaklega að geta brosað aftur. „Ég er svo þakklátur fyrir andlitságræðsluna því hún gefur mér annað tækifæri í lífinu,“ sagði Cameron á blaðamannafundi í gær. „Ég hef getað snúið mér aftur af því sem ég elska að gera, eins og að vera utandyra, spila íþróttir og verja tíma með vinum og fjölskyldu minni.“ Þá sagðist Cameron vonast til þess að fara að vinna á nýjan leik og jafnvel stofna fjölskyldu. Aðgerð Cameron fór fram í NYU Langone Health Center í New York í janúar. Samkvæmt BBC tók hún 25 klukkustundir og rúmlega hundrað heilbrigðisstarfsmenn komu að henni. Hún var þó ekki opinberuð fyrr en í vikunni. Frá því fyrsta andlitságræðslan var framkvæmd árið 2005 hafa rúmlega 40 slíkar verið framkvæmdar. Þetta var þriðja slíka aðgerð skurðlæknisins Eduardo D. Rodriguez. Andlitið sjálft kemur frá hinum 23 ára gamla Will Fisher sem dó í fyrra. Móðir hans, Sally, segist þakklát fyrir dauðsfall sonar síns hafi hjálpað Cameron að öðlast nýtt líf. „Að fá að vera með í þessu ferli hefur hjálpað mér í gegnum mjög erfitt tímabil,“ sagði Sally. „Ég er ekki viss um að ég hefði lifað fráfall Will af ef Cameron hefði ekki verið til staðar.“ Cameron þakkaði Sally og fjölskyldu Will fyrir gjöf þeirra og sagðist alltaf ætla að heiðra minningu hans.
Bandaríkin Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira