Vinnustofur í Veröld fyrir félagasamtök í þróunarsamvinnu Heimsljós kynnir 5. nóvember 2018 16:00 Frá Úganda Gunnisal
Tvær vinnustofur verða í Veröld - húsi Vigdísar í vikunni fyrir félagasamtök í þróunarsamvinnu, önnur á morgun, þriðjudag, og hin síðari fimmtudaginn 8. október. Báðar vinnustofunar verða opnar milli klukkan 17 og 19. Aðgangur er ókeypis og opið fyrir alla. Vinnustofurnar eru sértaklega miðaðar að félagasamtökum sem ekki hafa mikla reynslu af samstarfi við utanríkisráðuneytið á sviði þróunarsamvinnu, en einnig starfsfólki reyndari samtaka sem hafa áhuga á að auka við þekkingu sína. Ráðuneytið hefur sem kunnugt er kallað eftir þátttöku fleiri samstarfsaðila á síðustu vikum, sérstaklega með skírskotun til áherslu á mannréttindi og samstarf við atvinnulífið. Á vinnustofunni á morgun, þriðjudaginn 6. nóvember, verður farið yfir hvert markmið íslenskra stjórnvalda er með alþjóðlegri þróunarsamvinnu og hvaða virðisauki kann að vera af aðkomu félagasamtaka í málaflokknum. Jafnframt verða stefnumið ráðuneytisins og verklagsreglur í samstarfi við félagasamtök kynnt nánar. Á síðari vinnustofuni verður farið nánar í undirbúning, framkvæmd og eftirlit með verkefnum. Sjöfn Vilhelmsdóttr, forstöðumaður stofnunar stjórnsýslufræða við Háskóla Íslands, stýrir vinnustofnunum. Sjöfn hefur jafnframt starfað sem ráðgjafi við umfjallanir um umsóknir félagasamtaka um styrki til þróunarsamvinnuverkefna.Samstarfstækifæri fyrir íslensk fyrirtæki við þróunarríki?Utanríkisráðuneytið minnir einnig á morgunverðarfund sem haldinn verður í fyrramálið, 6. nóvember, þar sem nýjar leiðir til til samstarfs á sviði þróunarsamvinnu verða kynntar. Fulltrúar fyrirtækja, frjálsra félagasamtaka og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta og heyra nánar um þessa samstarfsmöguleika. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarpar fundinn en María Erla Marelsdóttir skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu ráðuneytisins verður fundarstjóri.Morgunfundurinn hefst kl. 9:00 á Grandi hóteli í Reykjavík og stendur yfir í tvo klukkutíma.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent