Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar tvisvar á morgun Ingvar Þór Björnsson skrifar 8. apríl 2018 21:15 Hernaðaryfirvöld í Rússlandi hafa haldið því fram að engin efnavopnaárás hafi verið gerð. Vísir/AFP
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur til með að funda tvisvar á morgun vegna efnavopnaárásar sem gerð var á bæinn Douma í Austur-Ghouta í Sýrlandi í gærkvöldi. Beiðni um fund hefur bæði borist frá Rússum sem og Bandaríkjunum í kjölfar árásarinnar. Reuters greinir frá. Rússar óskuðu eftir fundi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag og stuttu síðar óskuðu Bandaríkin, Frakkland, Bretland, Svíþjóð, Pólland, Holland, Kúveit, Perú og Fílabeinsströndin eftir fundi vegna málsins. Rússar hafa krafist þess að funda fyrst með ráðinu þar sem beiðni þeirra var lögð fram fyrst. Stjórnarher Assads Sýrlandsforseta gerði loftárás á bæinn Douma í gær en tunnusprengju var varpað úr þyrlu. Hjálparsamtökin Hvítu hjálmarnir segja að um saríngas sé að ræða. Talið er að minnst sjötíu hafi látið lífið. Ríkisstjórn Sýrlands hefur hafnað ásökunum auk þess sem að hernaðaryfirvöld Rússlands hafa einnig haldið því fram að engin efnavopnaárás hafi verið gerð.Guðlaugur Þór fordæmir árásinaGuðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur fordæmt árásina og kallað eftir samstilltum aðgerðum Öryggisráðsins. Þá segir hann að sýrlensk yfirvöld verði að virða alþjóðalög. Leiðtogar stærstu ríkja heims hafa jafnframt fordæmt árásina í dag. Þá kallaði Donald Trump Bandaríkjaforseti Assad Sýrlandsforseta skepnu á Twitter síðu sinni. Sýrlenski stjórnarherinn beitti einnig saríngasi í eiturefnaárásinni í apríl í fyrra en saríngas er banvænt efnavopn, um tuttugu sinnum banvænna en blásýra, og ræðst það að miðtaugakerfi líkamans og lamar öndunarfæri. Douma er eini bærinn í Austur-Ghouta sem stjórnarherinn í Sýrlandi hefur ekki náð tökum á.
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira