Elon Musk og Helstirnið Sigurður Stefán Flygenring skrifar 10. janúar 2018 13:13 Árið er 2018. Tæknileg hápólitísk vandamál eru það sem mannkyninu stafar hvað mest ógn af. Ha? Hvað á hann eiginlega við? Jú segjum sem svo að Elon Musk ákveði einn morguninn að verða vondi kallinn, gerast Sith, skjóta sér og sínu Helstirni út í geim og hefjast handa við að senda út uppfærslur í Tesla bílana. Skilaboðin eru einföld, gígaflopps-skjákortin sem eru um borð í bílunum taka við myndbandssteymum frá umhverfi bílsins og greinir hvað er þar að finna. Manneskja? Hvít kona, gulur maður eða svart barn? Keyra þetta niður eins og skot! Á sama tíma kemst FBI yfir iPhone símann hans Elon sem er dulkóðaður. Í von um að stoppa hann af leita þeir til Apple, sem neita að gefa út leynilega uppfærslu sem afvirkjar hámarkstilraunir fyrir réttan kóða sem myndi gera þeim kleift að komast inn í símann á örfáum klukkustundum, og skýlir Apple sér við friðhelgisstefnu einstaklingsins. Satoshi Nakamoto, óþekktur skapari Bitcoin og einn ríkasti einstaklingur í heimi kaupir upp snjall fyrirtæki sem framleiða hurðalása, myndavélar, dróna og öryggiskerfi með Bitcoins undir merkjum aflandsfélags og kemur sér þægilega fyrir við stjórnborðið í svakalegu 5 stjörnu neðanjarðarbirgi. Kínverski hakkarinn „NeoGuzzi“ er búinn að vinna dag og nótt við það að taka yfir Hyperloop stöðina í Dubai í gegnum órekjanlegan VPN þjón og skýtur út hylki... út í geim? Eða kannski á einhvert sendiráðið. Allt undir formerkjum hvers? Og hver ber ábyrgðina? Í þessum töluðu orðum skaut Richard Branson, eigandi Virgin Galatic sér út fyrir jarðarmörk í geimskutluhóteli ásamt nokkrum vel völdum og frægum stjörnuvinum (engar áhyggjur, Kim fékk far). Á meðan situr Trump taugaveiklaður við skrifborðið sitt og þrýstir létt á Coca Cola ® takkann. Heimurinn er allt í einu orðinn stór hættulegur, án þess að jarðarbúar hafi gert sér nokkra grein fyrir hættunni sem hefur verið að myndast, og í leiðinni lofað hana jafnóðum með kaupum á nýjasta tækniundrinu, um leið og það kemur á markað að sjálfsögðu. Maður er ekki maður með mönnum nema eiga slíkt tæki. En hvað þarf heimurinn? Superman? Ef við skoðum söguna (sem þeir sem hafa eða höfðu valdið skrifuðu að sjálfsögðu, og sáu í leiðinni til þess að hinar sögurnar sem skyggðu á þeirra veldi eða markmið yrðu brenndar) þá hafa trúarbrögð verið notuð sem stjórn á samfélaginu, allt þangað til þjóðfélög, lýðveldi (banana eður ei), einræðisherrar, lögregluvöld o.s.f.v. „tóku við“ keflinu. Þau eru ótal mörg, og stefnan jafn ólík eins og þau eru mörg. Hvað ef við mannfólkið eignumst nýjan „Guð“, slíkan sem nær allt veit og verndar okkur mannfólkið, sem keyrður er af Blockchain tækninni og tekur gríðarlega upplýstar ákvarðanir fyrir okkur með aðstoð machine learning og AI tækninnar keyrður af petafloppum frá miners sem fá carbon credits sem einhverskonar karma stig. Carbon credits geta þeir svo sem slík hafa, notað til að kaupa eplið sem þeim langar svo í alla leið frá Tyrklandi, eða fallega pilsið frá Bandaríkjunum. Því allt telur þetta og við eigum bara eina jörð... eins og er allavega.Höfundur er tækninörd og hugsuður Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halla, ekki Kata Sævar Þór Jónsson Skoðun Halldór 01.06.2024 Halldór Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir Skoðun Getur reiði valdið veikindum? Sigurbjörg Jónsdóttir Skoðun Taktísk skilyrðing umræðunnar Magnús Davíð Norðdahl, Skoðun Ráðherrar hafa áhyggjur af valdbeitingu Tómas Ingvason Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Halla, ekki Kata Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Getur reiði valdið veikindum? Sigurbjörg Jónsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrar hafa áhyggjur af valdbeitingu Tómas Ingvason skrifar Skoðun Taktísk skilyrðing umræðunnar skrifar Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Sjá meira
Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir skrifar
Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir Skoðun