Tottenham þarf að taka áhættu ef liðið ætlar að verða meistari Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. maí 2018 09:30 Pochettino þakkar stuðningsmönnum fyrir stuðninginn eftir leik liðsins í gær. vísir/getty
Tottenham hélt áfram að festa sig í sessi með bestu liðum Englands í vetur en eftir sem áður kom enginn bikar í hús. Liðið endaði í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar en þetta er þriðja árið í röð sem liðið er á meðal þriggja efstu. Spurs hefur aftur á móti ekki unnið bikar síðan 2008 er það varð deildabikarmeistari. Stjóri félagsins, Mauricio Pochettino, ætlar að ræða við forráðamenn félagsins á næstu dögum og skoða hvað sé best að gera fyrir félagið í framhaldinu. „Ef við ætlum að berjast um titlana í fullri alvöru þá þurfum við aðeins að skoða það sem við erum að gera. Ég tel að félagið standi á þeim tímamótum að það þurfi að taka áhættu og leggja aðeins harðar að sér ef það eiga að koma titlar í hús,“ sagði Pochettino. Argentínumaðurinn tók við liðinu árið 2014 og undir hans stjórn er félagið sífellt á uppleið. Samt hefur það eytt mun minni peningum í leikmenn en hin félögin í topp sex á Englandi. „Ég tel mig hafa skýra sýn á það sem við verðum að gera. Ég veit ekki hvort félagið verður sammála mér í því. Ég veit að stjórnarformaðurinn mun hlusta á mig en ég fæ stundum brjálaðar hugmyndir. Nú er mikilvægt fyrir félagið að vera hugrakkt og taka áhættur.“
Enski boltinn Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Fleiri fréttir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Falldraugurinn fylgir Tottenham í lokaumferðina Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Arsenal er Englandsmeistari Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Sjá meira