Fá 32,5 milljónir til rannsóknar á áhrifum hryðjuverkaógnar á borgara Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. mars 2018 10:39 Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar, Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, og Hulda Þórisdóttir, dósent í stjórnmálafræði eru meðal aðstandenda rannsóknarinnar. Myndir/Háskóli Íslands
Þrír fræðimenn við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands og norrænir samstarfsfélagar þeirra hafa fengið rúmlega 120 milljóna króna styrk frá Nordforsk til að rannsaka áhrif hryðjuverkaógnar á borgara og einnig áhrif lagasetningar gegn hryðjuverkum á viðhorf fólks til lýðræðis og trausts á stjórnvöldum. Af þessum heildarstyrk til verkefnisins koma 32,5 milljónir króna í hlut Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HÍ. Nordforsk er norræn stofnun sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og hefur umsjón með og styrkir rannsóknasamtarf á Norðurlöndum, að því er segir í tilkynningu. Stofnunin úthlutaði á dögunum þremur styrkjum til rannsókna sem tengjast örygg samfélaga á Norðurlöndum undir yfirskrift áætlunarinnar The Underpinnings of Nordic Societal Security. Alls bárust 17 umsóknir um styrki úr áætluninni en rannsóknarverkefnin þrjú sem fengu styrk að þessu sinni fá hvert um sig 9,5 milljónir norskra króna, jafnvirði um 124 milljóna íslenskra króna. Eitt þeirra þriggja verkefna sem hljóta styrk er „Hryðjuverkaógn á Norðurlöndunum: Áhrif á borgara, lagasetningar og lögmæti (The Challenge from Terrorism in the Nordic Countries: An analysis of citizens’ reactions, policy responses and legitimacy)“.Alls bárust 17 umsóknir um styrki úr áætluninni en rannsóknarverkefnin þrjú sem fengu styrk að þessu sinni fá hvert um sig 9,5 milljónir norskra króna, jafnvirði um 124 milljóna íslenskra króna.Mynd/Háskóli ÍslandsMeðal aðstandenda þess eru þau Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar, Hulda Þórisdóttir, dósent í stjórnmálafræði, og Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði. Dag Arne Christensen frá UNI Research AS í Noregi stjórnar verkefninu en auk þeirra koma fræðimenn Háskólanum í Bergen og Gautaborgarháskóla að verkefninu. „Lýðræðisríkjum, þar á meðal norrænu ríkjunum, stendur mikil ógn af hryðjuverkum sem skapa þrýsting á lýðræðislega kjörin stjórnvöld. Eitt af mikilvægustu verkefnum þeirra er að tryggja öryggi borgaranna. Ef borgarar upplifa óöryggi og að lögum og reglum sé ekki framfylgt getur það grafið undan trausti á stjórnvöldum,“ segir í tilkynningu. „Aðgerðir til að tryggja öryggi borgara geta þó einnig grafið undan grunnstoðum lýðræðisins. Harðar aðgerðir eins og húsleitir án heimilda, handtökur, símahleranir og langt gæsluvarðhald án dómsúrskurðar geta legið beint við til að tryggja öryggi borgaranna en um leið eru þær í andstöðu við borgaraleg réttindi. Mikil togstreita getur því skapast á milli öryggissjónarmiða og frelsissjónarmiða í ríkjum sem byggja á lýðræðisgildum.“
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira