Stórkostleg saga frá því þegar Seth Rogen kynnti Tom Cruise fyrir klámi Stefán Árni Pálsson skrifar 13. ágúst 2018 11:30 Rogen pissaði í flösku í innkeyrslu Tom Cruise.
Leikarinn skemmtilegi Seth Rogen var í skemmtilegu viðtali hjá nafna sínum Seth Myers á dögunum. Þar kom hann meðal annars inn á skemmtilega sögu um samskipti sín við stórleikarann Tom Cruise. Rogen vill meina að hann hefði kynnt Cruise fyrir klámi á internetinu. „Hann vissi ekki að internetklám væri til á þessum tíma. Þetta var á þeim tíma þegar allir héldu að Cruise væri geðveikur. Hann var að stökkva upp á sófa í sjónvarpi og algjörlega í fimmta gír að vera Tom Cruise,“ segir Rogen í upphafi sögunnar. „Þarna vildi hann hitta nokkra grínista til að fá ráð frá þeim hvernig best væri að haga sér opinberlega svo að fólk myndi ekki halda að hann væri eitthvað klikkaður. Hann hringdi í Judd [Apatow, leikstjóra] og við vorum að gera kvikmyndina Knocked Up á þessum tíma, fyrir rúmlega tíu árum. Judd bað mig um að koma með sér og hitta Tom Cruise og ég var heldur betur til í það.“ Rogen segist hafa verið í spreng þegar hann keyrði upp að húsi Cruise fyrir fyrsta fund. „Ég vildi ekki að það fyrsta sem ég myndi segja við Cruise væri að ég væri alveg að pissa á mig og þyrfti að komast strax á klósettið. Svo við stoppuðum örlítið neðar í innkeyrslunni og ég pissaði í Snapple flösku í innkeyrslu Tom Cruise. En á fundinum sagði ég Tom Cruise að klám á internetinu væri eitthvað sem væri til. Ég man ekki alveg hvernig þetta kom upp,“ segir Rogen og bætir við að líklega hafi þetta komið fram þegar hann sagði sögu af vini sínum sem hafði verið að skoða klám á netinu. „Þá heyrist allt í einu í Tom Cruise: Bíddu hvað meinar þú? Og ég trúði honum alveg hundrað prósent að hann vissi í raun ekki hvað ég var að tala um. Það er í raun alveg ótrúlegt því að það fyrsta sem ég komst að varðandi internetið var að þar væri klám.“ Hér að neðan má heyra þessa skemmtilegu sögu.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Richard Riehle látinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Sjá meira