Björgvin var ekki í leikmannahópnum gegn Val í byrjun júlí og var þá ákveðið að tala um agabann. Síðar gaf KR út yfirlýsingu þar sem kom fram að Björgvin hefði ákveðið að leita sér aðstoðar sérfræðinga vegna misnotkunar á róandi lyfjum. Einnig sagði í yfirlýsingunni að KR mundi aðstoða Björgvin í einu og öllu við að ná bata.
„Ég veit að það var ekki sjálfgefið hjá KR og ég var ekki endilega að búast við því en það var mikill léttir og ég er þakklátur þeim að standa við bakið á mér – það sýnir hvernig fólk þessi klúbbur hefur að geyma, hvað þetta eru miklir toppmenn og góðir menn í kringum klúbbinn,“ segir hann.

Þegar maður gerir mistök þá líður manni illa og maður vill gera allt til að bæta fyrir það. Það var frábært að gera það með markinu og ég mun reyna að halda því áfram. Þetta hvetur mann áfram til að standa sig og reyna að gefa til baka.“
Mark Björgvins kom eftir frábæran sprett Óskars Arnar Haukssonar, sem er fyrirliði KR. Björgvin fór á nærstöngina og þrumaði fast fram hjá markverði Grindavíkur. Bjarni Guðjónsson, aðstoðarþjálfari KR, teiknaði markið upp í huga Björgvins rétt áður en hann fór inn á völlinn.
„Óskar matreiddi þetta fyrir mig og ég þurfti ekki að gera mikið. Bjarni var nýbúinn að hamra á því að ég ætti að hlaupa á nærstöngina. Hann sagði við mig að sama hvað, ég ætti að fara á nærstöngina og það borgaði sig.“
Eftir leikinn gegn Val sló Óskar á þráðinn til Björgvins og áttu þeir gott spjall sem Björgvin er þakklátur fyrir. „Hann heyrði í mér og sagði að hann og allir strákarnir stæðu með mér. Það skipti þá engu máli hvað hefði komið upp á og þeir myndu styðja við bakið á mér, sama hvað. Við áttum gott spjall og mér leið vel eftir það samtal. Nánast allir strákarnir heyrðu svo í mér og og það er mikil samstaða innan félagsins og ég er mjög þakklátur fyrir að hafa þá sem liðsfélaga.“

Ég held að þetta sé meðal annars ástæða þess að KR er rótgróið stórveldi og risaklúbbur á þessu landi og hefur verið alla tíð. Það er vegna fólksins í kringum félagið. Um leið og maður kemur hingað þá er þetta eins og ein stór fjölskylda – allt frá stjórninni og til stuðningsmannanna.“
Leikurinn gegn Grindavík var fyrsti leikur Björgvins eftir að hann reimaði á sig takkaskóna eftir að hann sneri til baka. Hann var ekki mikið að búast við að fá mínútur en kallið kom frá Rúnari Kristinssyni að hita upp og gera sig kláran. „Það var einstaklega ljúft að koma inn á og ég var ekkert endilega að búast við því enda fyrsti leikurinn minn í hóp frá því ég sneri aftur. Það sýnir hvað KR hefur mikla trú á mér og það var frábært að geta hjálpað liðinu um leið með markinu.
Ég fór í burtu skömmu eftir Valsleikinn til að taka á mínum vandamálum. Svo tók ég nokkrar æfingar fyrir þennan leik. Rúnar var búinn að segja við mig að ef ég er í andlegu jafnvægi þá sé ég með liðinu. Þar ætla ég mér að vera.“