Viðskipti innlent

Segir það hafa verið ótvíræða skyldu að kæra Samherja

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Már Guðmundsson seðlabankastjóri ræddi við Kristján Kristjánsson á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri ræddi við Kristján Kristjánsson á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. vísir/vilhelm
Seðlabankastjóri segir að bankanum hafi verið skylt að kæra Samherja vegna brota á reglum um gjaldeyrismál. Hann hafi kannað að ljúka málinu með sáttaferli, sem lögmenn bankans hafi hins vegar útilokað.

Í upphafi mánaðarins ógilti Hæstiréttur fimmtán milljóna króna sekt Seðlabanka Íslands á hendur Samherja vegna ætlaðra brota fyrirtækisins á skilaskyldu á erlendum gjaldeyri á árunum eftir hrun.

Eftir úrskurð Hæstaréttar steig forstjóri Samherja fram og bar seðlabankastjóra þungum sökum, sagði hann hafa gerst brotlegan við lög og að Samherji íhugaði nú að sækja seðlabankastjóra til saka vegna málsins.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri ræddi við Kristján Kristjánsson á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Már sagðist ekki ætla að tjá sig nánar um hugsanlega kæru Samherja á hendur sér, fyrirtækið hafi rétt til að leita réttar síns.

Höftin láku

„Það verður náttúrulega að hafa það í huga, að það er hin hliðin á þessu máli, það er að á þessum tíma, láku höftin allverulega, sérstaklega á árinu 2009. Bæði vantaði upp á skilaskylduna og það var verið að koma með aflandskrónur í stórum stíl til landsins. Menn voru náttúrulega að græða á þessu öllu. Sá hagnaður féll ekki af himnum ofan. Hann kom úr vasa almennings,“ segir Már.

Hann segir það hafa verið skyldu Seðlabankans að láta gjaldeyrishöftin halda. Það hafi tekist að lokum og gjaldeyrisskilin batnað.

„Við litum á þessa skyldu okkar og tókum það alvarlega. Auðvitað er líka hægt að gera hina villuna, af því að menn eru svo hræddir um að þeir vinni ekki öll mál, að þeir gegni ekki þessari skyldu sinni. Okkur ber að kæra ef rökstuddur grunur er. Við eigum ekki að leggja mat á það hvað er best fyrir okkur. Þetta er bara ótvíræð skylda.“



Ólöglegt að leita sátta



Hann segir að það hafi verið ólöglegt að ljúka málinu með sáttaferli.

„Varðandi það að ef menn ætli að segja að þetta hafi verið sérstök herferð, þá reyndi ég að kanna þann möguleika, áður en Samherji var kærður í fyrra skiptið, sagði ég við mína lögfræðinga og aðra: „Er ekki hægt að setja þetta mál í sáttaferli?“ Vegna þess að svona mál eru flókin. Þá var kallað á hæstaréttarlögmann sem sagði bara réttilega, og las upp úr lögunum: „Þú mátt það ekki. Þá ert þú að brjóta lögin“,“ sagði Már Guðmundsson en samtal þeirra Kristjáns má nálgast í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

Samherji segir rangt sagt frá

Lögmaður Samherja segir rangt sem sagði í frétt RÚV að niðurfelling sérstaks saksóknara á kæru Seðlabankans hefði byggt á því að skort hefði á samþykki ráðherra á reglum bankans um gjaldeyrismál

Krefst skýringa frá Seðla­bankanum vegna Sam­herja­málsins

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur sent bankaráði Seðlabankans bréf þar sem hún óskar eftir greinargerð ráðsins um mál Samherja frá þeim tíma þegar rannsókn bankans á meintum brotum á reglum um gjaldeyrismál hófst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×