Demókratar tilnefna Nancy Pelosi til þingforseta Kjartan Kjartansson skrifar 28. nóvember 2018 21:50 Pelosi virtist glöð í bragði eftir fundinn þar sem demókratar greiddu atkvæði um hvert þingforsetaefni þeirra ætti að vera. Vísir/EPA
Nancy Pelosi, leiðtogi Demókrataflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, var kjörin þingforsetaefni hans í atkvæðagreiðslu í dag. Hópur róttækari þingmanna lýsti andstöðu við að Pelosi yrði tilnefnd til þingforseta en enginn bauð sig fram gegn henni. Pelosi er 78 ára gömul og hefur setið á þingi fyrir Kaliforníu frá 1987 og varð leiðtogi demókrata í fulltrúadeildinni árið 2003. Hún varð fyrsta og eina konan til að gegna embætti forseta fulltrúadeildarinnar árið 2007.Eftir að demókratar misstu meirihluta sinn árið 2011 hélt hún áfram að leiða þingflokkinn. Allir þingmenn fulltrúadeildarinnar kjósa um þingforseta þegar nýtt þing kemur saman í byrjun næsta árs. Demókratar unnu meirihluta í þingkosningunum fyrr í þessum mánuði og hafa að minnsta kosti 233 af 435 sætum þar. Pelosi þarf 218 atkvæði til að ná kjöri sem þingforseti. Repúblikanar hafa gert Pelosi að sérstökum skotspóni í kosningabaráttum um allt land. Sumir demókratar töldu að hún væri dragbítur á flokknum af þeim sökum. Breska ríkisútvarpið BBC segir að 32 þingmenn demókrata hafi greitt atkvæði gegn Pelosi í dag. Kjósi allir þingmenn repúblikana gegn henni gætu sautján til átján þingmenn demókrata fellt hana í kosningunni. Embætti forseta fulltrúadeildarinnar er eitt það valdamesta í bandarískum stjórnmálum. Þingforsetinn er þriðji í röð handhafa forsetavalds, á eftir varaforsetanum. Það hefur þó aldrei gerst í sögu Bandaríkjanna að þingforsetinn þurfi að fara með vald forseta.
Bandaríkin Tengdar fréttir Útlit fyrir miklar deilur næstu tvö árin Repúblikanaflokkurinn hefur bætt við nauman meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings og Demókratar hafa tryggt sér meirihluta í fulltrúadeildinni. 7. nóvember 2018 05:45 Washington undirbýr sig fyrir stríð Stjórnmála- og embættismenn í Washington DC undirbúa sig nú fyrir pólitískt stríð í kjölfar yfirtöku Demókrata á fulltrúadeild Bandaríkjaþings og brottreksturs Jeff Sessions, dómsmálaráðherra. 8. nóvember 2018 12:35 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira
Útlit fyrir miklar deilur næstu tvö árin Repúblikanaflokkurinn hefur bætt við nauman meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings og Demókratar hafa tryggt sér meirihluta í fulltrúadeildinni. 7. nóvember 2018 05:45
Washington undirbýr sig fyrir stríð Stjórnmála- og embættismenn í Washington DC undirbúa sig nú fyrir pólitískt stríð í kjölfar yfirtöku Demókrata á fulltrúadeild Bandaríkjaþings og brottreksturs Jeff Sessions, dómsmálaráðherra. 8. nóvember 2018 12:35