Spá 2,5 prósenta hagvexti á næsta ári Atli Ísleifsson skrifar 2. nóvember 2018 10:11 Búist er við að verðbólga aukist samfara gengisveikingu krónunnar og hækkunar á verði olíu. vísir/vilhelm
Hagvöxtur á árinu 2019 verður 2,5 prósent á árinu 2019 samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofunnar. Útlit er fyrir að hagvöxtur í ár verði svipaður og á síðasta ári, eða 3,8 prósent. Í frétt á vef Hagstofunnar segir að þegar búist sé við að hægja muni á hagvexti þegar líkur á spátímann, sem nær frá 2018 til 2024. Búist er við að verðbólga aukist samfara gengisveikingu krónunnar og hækkunar á verði olíu. Gert er ráð fyrir einkaneysla vaxi um 4,9 prósent á árinu 2018, samneysla um 3,3 prósent og fjárfesting um 4,5 prósent. „Reiknað er með að hagvöxtur verði 2,5% árið 2019, einkaneysla vaxi um 3,8%, samneysla um 1,9% og að fjárfesting aukist um 2,8%. Á árunum 2020-2024 er gert ráð fyrir að vöxtur landsframleiðslu verði í kringum 2,6%, vöxtur einkaneyslu fari úr 3% árið 2020 í 2,5% undir lok spátímans og að vöxtur samneyslu verði um 2% á ári. Þá er gert ráð fyrir að fjárfesting aukist árið 2020 um 4,3% en um 2,8% að meðaltali eftir það. Talið er að íbúðafjárfesting verði áfram kröftug í ár og á næsta ári en svo dragi úr vexti hennar með minnkandi umsvifum í hagkerfinu. Samdráttur var í fjárfestingu tengdri stóriðju árið 2017 og er búist við áframhaldandi samdrætti út árið 2022. Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar verður áfram neikvætt og gert er ráð fyrir að viðskiptajöfnuður dragist saman á næstu árum. Eftir því sem framboð á íbúðum eykst er gert ráð fyrir hóflegri raunhækkun á verði húsnæðis. Reiknað er með að verðbólga aukist samfara gengisveikingu og hækkunar á verði olíu. Kjarasamningar mikils meirihluta vinnumarkaðarins renna út í lok árs 2018 og byrjun árs 2019 og því ríkir mikil óvissa um launaþróun ársins 2019 og síðar. Búist er við að atvinnuleysi aukist jafnt og þétt út spátímann samfara minni spennu í þjóðarbúskapnum,“ segir í fréttinni.
Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Sjá meira