Viðskipti innlent

ESB lært af íslenska hruninu að mati Geirs

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Geir H. Haarde ræddi við Bloomberg-fréttastofuna í gær.
Geir H. Haarde ræddi við Bloomberg-fréttastofuna í gær. Vísir
Geir H. Haarde, sendiherra Íslands í Washington og fyrrverandi forsætisráðherra, segir að Íslendingar hafi mögulega lagt of mikið traust á evrópskt regluverk í aðdraganda fjármálahrunsins á Íslandi árið 2008. Hann telur að áhættumati hafi verið ábótavant „á mörgum stigum“ og að margir geti horft til baka og viðurkennt að þeir hefðu mátt gera betur á misserunum fyrir fall bankanna.

Þetta er meðal þess sem kom fram í viðtali Bloomberg fréttastofunnar við Geir, sem tekið var í gærkvöld. Þar ræddi hann um lærdóm Íslendinga af falli bankakerfisins fyrir hartnær áratug. Geir sagði að margt hafi breyst til hins betra á árunum sem liðin eru, þar með talið regluverk Evrópusambandsins um fjármálastarfsemi. Hann telur að sambandið hafi lært mikið af reynslu Íslendinga, þá ekki síst að verja skuli sparifjáreigendur í sambærilegum skakkaföllum. Íslensk stjórnvöld hafi veitt sparifjáreigendum forgang fram yfir aðra kröfuhafa eftir fall bankanna og telur Geir að Evrópusambandið horfi nú sambærilegra ráðstafana.

Talið barst þá að Landsdómsmálinu, þar sem Geir var sakfelldur í einum ákærulið, og var hann spurður hvar hann teldi að ábyrgðin lægi þegar bankar væru keyrðir í þrot. Geir segir að réttast væri að draga stjórnendur bankanna sjálfra til ábyrgðar fyrir mistök sín og lögbrot - rétt eins og eigi við í tilfelli allar annarra sem brjóti af sér. Það hafi verið gert á Íslandi þar sem bankatopparnir hafi sætt fangelsisvist. Það sé þó undir dómskerfum ríkjanna að meta hvað skuli gera í hverju tilfelli fyrir sig.

Íslenskt efnahagslíf hefur kólnað á síðustu vikum, sem hefur ekki síst birst í gengisfalli krónunnar og meðfylgjandi inngripi Seðlabanka Íslands. Geir var ekki tilbúinn að fallast á fullyrðingu spyrilsins um að þetta væri til marks um niðursveiflu eða að annað hrun væri handan við hornið. Það hafi lengi legið fyrir að gengi krónunnar hafi verið ofmetið, sem hafi gert útflutningsgreinunum erfitt fyrir. Íslendingar hafi á síðustu árum fjölgað undirstöðuatvinnugreinum sem auðveldar íslensku efnahagslífi að takast á við óvissu í einni útflutningsgrein. Það sé þó alltaf hætta á gengi lítilla, sjálfstæðra gjaldmiðla sveiflist eitthvað.

Viðtal Bloomberg við Geir má sjá hér að neðan


Tengdar fréttir

Geir tapaði í Strassborg

Mannréttindadómstóll Evrópu hafnaði í dag öllum kröfum Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í máli hans gegn íslenska ríkinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×