Grátlegt tap í spennutrylli í Portúgal Anton Ingi Leifsson skrifar 16. september 2018 19:32 Martin átti góðan leik í Portúgal í kvöld. vísir/ernir
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði 80-77 gegn Portúgal í fyrsta leik liðsins í fyrsta leik liðsins í forkeppni EM 2021. Ísland byrjaði leikinn af miklum krafti. Það var kraftur og áræðni í íslenska liðinu sem var fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 19-14. Jafnræði var þó með liðunum og voru Portúgalarnir aldrei langt undan. Er liðin gengu til búningsherbergja var staðan 34-33, heimamönnum í Portúgal í vil. Þriðji leikhluti var skelfilegur hjá Íslandi. Liðið tapaði leikhlutanum með tíu stiga mun, 24-14, en varnarleikur liðsins í leikhlutanum var slakur og sóknarleikurinn stirður. Strákarnir voru hins vegar ekki hættir og náðu að jafna metin í fjórða leikhluta er Kári Jónsson setti niður tvær þriggja stiga körufr í röð og jafnaði í 70-70. Ísland tók leikhlé er tuttugu sekúndur var eftir og staðan 78-77, Portúgölum í vil. Leikfléttan gekk upp, Martin Hermannsson fékk boltann og keyrði að körfunni og lagði hann í spjaldið. Í þann mund sem hann lagði hann í spjaldið sló einn leikmaður í spjaldið og hristi þar af leiðandi körfuna sem er bannað. Íslensku leikmennirnir og þjálfararnir vildu eðlilega fá körfu en ekkert var dæmt við litla hrifningu íslenska liðsins. Ísland braut svo strax af sér og sendi Portúgala á vítalínuna. Þeir skoruðu úr báðum vítunum og aftur tók Ísland leikhlé. Kári Jónsson reyndi lokaskotið en það geigaði. Lokatölur 80-77, Portúgölum í vil. Martin var stigahæstur íslenska liðsins með tuttugu stig. Auk þess gaf hann átta stoðsendingar. Næstur kom Tryggvi Snær Hlinason með fimmtán stig og fimm fráköst. Grátlegt tap hjá strákunum í fyrsta leik riðilsins en auk Íslands og Portúgals er Belgía einnig í riðlinum. Belgia vann eins stigs sigur á Portúgal í fyrsta leik þeirra, 66-65. Næstu leikir Íslands í riðlinum eru í nóvember er liðið mætir Portúgal og Belgíu en liðið spilar þá tvo leiki í alþjóðlegum landsliðsglugga.
Körfubolti Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Gardavatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grindavík - Keflavík | Suðurnesjaslagur af bestu gerð Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni Sjá meira