Segir þá jafngóða og þá Firmino, Mane og Salah Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2018 17:00 Leikmenn Bournemouth fagna marki Ryan Fraser um helgina. Vísir//Getty
Bournemouth hefur vakið mikla athygli í fyrstu fimm umferðum ensku úrvalsdeildarinnar en liðið er nú í fimmta sæti deildarinnar með 10 stig og 10 mörk. Aðeins Chelsea, Manchester City og Liverpool hafa skorað fleiri mörk en Bournemouth í upphafi leiktíðar og markvörðurinn Asmir Begovic hrósar mikið þriggja manna framlínu liðsins. Bournemouth vann 4-2 sigur á Leicester City um helgina. Begovic er óhræddur við að bera sína menn við þriggja manna framlínu Liverpool, skipaða þeim Roberto Firmino, Sadio Mane og Mo Salah. Öll deildin óttast þessa þrjá hjá Liverpool en Begovic segir þriggja manna framlínu Bournemouth verða jafngóða. „Það er ekkert lið í deildinni með betri framlínumenn en við. Við erum sóknarhugsandi lið sem vill sækja og vill skora mörk,“ sagði Asmir Begovic í viðtali við Daily Mail. Hér er hann að tala um þá Ryan Fraser, Josh King og Callum Wilson. Fraser skoraði tvö um helgina og King eitt. Callum Wilson gaf eina stoðsedningu í leiknum en hann er með 2 mörk og 3 stoðsendingar á tímabilinu. Ryan Fraser hefur líka komið að fimm mörkum í fyrstu fimm leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni í vetur (3 mörk og 2 stoðsendingar) og Norðmaðurinn Joshua King er með tvö mörk og 1 stoðsendingu. „Þeir eru jafngóðir og þriggja manna framlína Liverpool þegar þeir eru í stuði. Leikstíll okkar liðs hentar þeim. Þeir skilja kerfið og hvern annan vel og vonandi halda þeir svona áfram,“ sagði Begovic. Samtals hafa þeir Ryan Fraser, Josh King eða Callum Wilson komið með beinum hætti að 9 af 10 mörkum Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni. Það er aðeins eitt mark hjá liðinu sem enginn þeirra átti annaðhvort markið eða stoðsendinguna. Begovic er líka á því að Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, ætti að fara kíkja meira á leiki á næstunni því að hans mati eiga menn eins og Wilson, Steve Cook og Lewis Cook að vera í enska landsliðinu. „Nokkrir strákanna ættu að koma til greina í enska landsliðið. Þeir hafa verið að spila vel viku eftir viku. Callum, Steve Cook og Lewis Cook hafa allir verið að bæta sig. Það yrði mikil viðurkenning fyrir félagið ef þeir fá tækifæri með landsliðinu,“ sagði Begovic.
Enski boltinn Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ Sjá meira