Innlent

Ungir stefna til Þorlákshafnar

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Fjör á Unglingalandsmótinu 2007 eins og alltaf.
Fjör á Unglingalandsmótinu 2007 eins og alltaf. Fréttablaðið/Vilhelm
Búast má við að fimm til tíu þúsund manns heimsæki Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina þegar Unglingalandsmót UMFÍ fer þar fram. Þar af verða þátttakendur á annað þúsund.

Auk hefðbundinna greina má geta þess að keppt verður í fyrsta skipti í dorgveiði og sandkastalagerð að því er fram kemur í tilkynningu um mótið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×