Stórbrotið mark er ÍA rúllaði yfir Þór | Sjáðu markið Anton Ingi Leifsson skrifar 27. júlí 2018 19:45 Mark Arnars í kvöld var rosalegt. vísir/vilhelm
Skagamenn lentu ekki í miklum vandræðum með Þór í toppslag í Inkasso-deild karla. Leikið var á Skaganum í blíðskapaveðri í kvöld og unnu heimamenn 5-0 sigur. Arnór Snær Guðmundsson kom Skagamönnum yfir á 38. mínútu. Fyrirgjöf Þórðar Þorsteins Þórðarsonar rataði beint á kollinn á Arnóri sem skilaði boltanum í netið. Staðan 1-0 í hálfleik og á þriðju mínútu síðari hálfleiks var miðvörðurinn aftur á ferðinni. Hann skoraði þá eftir fyrirgjöf Hafnfirðings, Harðars Inga Gunnarssonar. Þriðja mark Skagamanna var af dýrari gerðinni og rúmlega það. Það skoraði Arnar Már Guðjónsson. Hann var snöggur að taka aukaspyrnu, rétt inn á sínum vallarhelmingi, og skoraði yfir Aron Birki Stefánsson í marki Þór. Stórbrotið. Heimamenn voru ekki hættir því fjórða markið kom tíu mínútum fyrir leikslok er Einar Logi Einarsson var aleinn í teignum eftir hornspyrnu. Hann stangaði boltann í netið og heimamenn komnir í 4-0. Veislunni var ekki lokið. Aron Kristófer Lárusson, varamaðurinn, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark undir lok leiksins og lokatölur 5-0 stórsigur Skagamanna í þessum toppslag. Þetta var fyrsti sigur ÍA síðan fimmta júlí en liðið er nú komið í annað sætið með 27 stig, jafn mörg stig og Ólafsvíkingar sem eru í þriðja sæti, en tveimur stigum á eftir toppliði HK. Þórsarar eru í fjórða sætinu með 26 stig og eru því enn með í þessari spennandi toppbaráttu sem er framundan í Inkasso-deildinni er tvö lið berjast um sæti í Pepsi-deildinni að ári.64' Arnar Már Guðjónsson (3-0) #fotboltinet pic.twitter.com/4MjgXbmL5d— ÍA TV (@ia_sjonvarp) July 27, 2018
Íslenski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira