Urðuðu á lóð sinni í trássi við starfsleyfi Sveinn Arnarsson skrifar 14. júní 2018 06:00 Í Borgarfirði. VÍSIR/VILHELM
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur krafist þess að Loftorka hætti ólöglegri urðun á lóð sinni í Borgarbyggð. Við eftirgrennslan eftirlitsins kom urðunin í ljós og hefur fyrirtækið stöðvað urðun á svæðinu. Von er á því að fyrirtækið og heilbrigðiseftirlitið hittist á fundi með bæjaryfirvöldum í Borgarbyggð til að fara yfir málið. Í lok apríl á þessu ári sendi framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins bréf til fyrirtækisins þar sem bent var á að ef fyrirtækið hætti ekki urðun á lóð sinni myndi þvingunaraðgerðum verða beitt gegn því. Málið var tekið fyrir á síðasta fundi eftirlitsins en starfsleyfi fyrirtækisins er háð ströngum skilyrðum. „Þeir voru að urða steypurör og fleira. Það er klárt að það var ekki í samræmi við starfsleyfi. Fyrirtækið taldi sig hafa haft leyfi frá bæjaryfirvöldum og höfum við því óskað eftir fundi með Borgarbyggð til að fara yfir málið,“ segir Helgi Helgason, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins. „Á meðan beðið er fundarins hefur fyrirtækið stöðvað urðunina. Það er mikilvægt að mál sem þessi séu á hreinu og að virða beri starfsleyfi sem er í gildi. Þar kemur skýrt fram að urðun er ekki heimil á lóð þeirra.“
Birtist í Fréttablaðinu Umhverfismál Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Fleiri fréttir Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Sjá meira