Formúla 1

„Smávægileg en mikilvæg breyting“

Bragi Þórðarson skrifar
Breytingar í Formúlunni.
Breytingar í Formúlunni. vísir/getty
Franski vélarframleiðandinn Renault stefnir á að minnka bilið í Mercedes og Ferrari í kappakstri helgarinnar.

Flest allir vélarframleiðendur Formúlunnar munu sennilega koma með betrum bætta vél í kanadíska kappaksturinn um helgina.

Renault er þó nokkuð viss um að þeirra breytingar muni sýna mestu framfarirnar.

„Þetta verður smávægileg en mjög mikilvæg breyting,” sagði Christian Horner, stjóri Red Bull við Autosport tímaritið í vikunni.

Red Bull er eitt þriggja liða sem nota Renault vélar.

Verksmiðjulið Renault hefur byrjað tímabilið mjög vel, og er nú í fjórða sæti í keppni bílasmiða á eftir Mercedes, Ferrari og Red Bull.

Magnaður árangur ef tekið er tillit til þess að árið 2016 þegar Renault keyptu Lotus liðið voru þeir að berjast um neðstu sætin. Þróunin er því í rétta átt og stefnir liðið á að vera berjast um sigra eftir tvö ár.

Vélaruppfærslan í Kanada verður vonandi annað skref í áttina að sigri fyrir franska vélarframleiðandann.

Uppfærslan gæti líka þýtt að Red Bull eigi möguleika á að færast nær Ferrari og Mercedes í slagnum um fyrsta sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×