Réttað yfir friðhelgum diplómata í barnaníðsmáli í Páfagarði Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 9. júní 2018 15:11 Vísir/afp
Réttað verður yfir preláta, sem er sakaður um varðveislu og dreifingu barnakláms, í Páfagarði en ekki Bandaríkjunum eins og þarlend stjórnvöld óskuðu eftir. Prelátinn, sem er Ítali að nafni Carlo Albergo Capella, hefur starfað á vegum Vatíkansins í Indlandi og Hong Kong í mörg ár. Hann var fluttur til Bandaríkjanna snemma árs 2017 en síðar sama ár barst Páfagarði tilkynning frá bandarísku alríkislögreglunni um að Capella væri grunaður um að dreifa myndum af barnaníð á netinu. Capella var þá umsvifalaust kallaður heim til Páfagarðs, sem neitaði síðan að framselja hann aftur til Bandaríkjanna þegar málið vatt upp á sig. Þar sem hann starfaði fyrir Vatíkanið naut Capella diplómatískrar friðhelgi í Bandaríkjunum. Það bjargar honum þó ekki frá ákæru heimafyrir. Réttarhöldin eiga að hefjast 22. þessa mánaðar en tímasetningin er afar óþægileg fyrir kaþólsku kirkjuna. Í síðasta mánuði buðust allir 34 biskupar kirkjunnar í Chile til að segja af sér vegna hneykslis sem tengdist kynferðisbrotum gegn börnum og hilmingu. Um svipað leyti féll dómur í máli fyrrverandi erkibiskupsins í Adelaide í Ástralíu. Hann var dæmdur fyrir að hilma yfir kynferðisbrot presta á áttunda áratug síðustu aldar.
Tengdar fréttir Vildu fá prest framseldan vegna barnakláms Háttsettur prestur, sem starfar í sendiráði Vatíkansins í Washington DC, hefur verið kallaður heim eftir að Bandaríkin fóru fram á að geta ákært hann vegna barnaklámsrannsóknar. 15. september 2017 17:02 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira
Vildu fá prest framseldan vegna barnakláms Háttsettur prestur, sem starfar í sendiráði Vatíkansins í Washington DC, hefur verið kallaður heim eftir að Bandaríkin fóru fram á að geta ákært hann vegna barnaklámsrannsóknar. 15. september 2017 17:02