Eflum atvinnulíf í Garðabæ Halldór J. Jörgensson skrifar 9. maí 2018 11:09 Atvinnuleysi í Garðabæ hefur aukist um 42% á einu ári. Hvergi á landinu eru fleiri háskólamenntaðir skráðir atvinnulausir en í Garðabæ eða 41% á meðan meðaltal sambærilegra sveitarfélaga er um 23% samkvæmt heimildum Vinnumálastofnunar. Þessari þróun vill Garðabæjarlistinn sporna við með markvissum aðgerðum til eflingar atvinnulífs og atvinnutækifæra. Þau tækifæri eru tilvalin tekjuaukning fyrir bæjarfélagið í formi aukins útsvars, aukinna tekna af atvinnustarfsemi og mögulega fyrirbyggjandi í aukningu umsókna um félagsleg úrræði.Röng forgangsröðun meirihlutans Á síðustu fjórum árum hefur lítið verið gert til að efla atvinnustarfsemi. Eitt af fyrstu verkum núverandi meirihluta var að leggja niður atvinnu- og tækniþróunarnefnd með þeim rökum að málaflokkurinn yrði færður til bæjarráðs. Undirritaður óskaði í framhaldi eftir því að málefni atvinnu og tækniþróunar yrði reglulegur dagskrárliður á fundum bæjarráðs. Það hefur ekki gerst enn á þessu kjörtímabili. Einu málin sem hafa verið rædd er koma Costco og tilraunir til að fá Vínbúðina á Garðatorg. Ekki hefur staðið á því að breyta skipulagi til að henta þessum aðilum þó svo sá seinni hafi alls ekki haft áhuga á Garðatorgi.Forgangsröðum skipulagi fyrir atvinnustarfsemi Garðabæjarlistinn vill forgangsraða deiluskipulagi fyrir atvinnustarfsemi. Í augnablikinu myndi Garðabær ekki geta tekið á móti fyrirtæki sem óskaði eftir lóð í Garðabæ fyrir sína starfsemi. Einfaldlega vegna þess að hún er ekki til á skipulagi. Garðabær á nægt land til að skipuleggja sem er tilvalið til atvinnustarfssemi. Það eina sem vantar er pólitískan vilja. Við viljum sjá tækifæri fyrir smærri og millistór fyrirtæki að setjast að eða hefja sína starfsemi í Garðabæ. Fyrirtæki sem eru með háa verðmætasköpun og kalla eftir menntuðu starfsfólki.Ávinningur samfélagsins Með því að skapa fleiri störf í Garðabæ eru meiri líkur á að Garðbæingar geti sótt atvinnu í bæjarfélagið. Þetta styttir daglegar ferðir í og úr vinnu, gerir íbúum mögulegt að vera nær skólum, íþróttastarfsemi og losar íbúa frá því að þurfa sitja löngum tímum í umferðahnútum höfuðborgarsvæðisins. Fjárhagslegur ávinningur Garðabæjar er töluverður í formi aukins útsvars og aukinna tekna af atvinnustarfssemi. Ávinningur íbúa eru fleiri tækifæri til að búa og starfa í Garðabæ. Ávinningur umhverfisins er minni mengun. Virkjum lýðræðið, kjósum Garðabæjarlistann og gerum Garðabæ fyrir alla. Líka atvinnurekstur.Höfundur er bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar og skipar 4. sæti á lista Garðabæjarlistans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á lokaorðið? Hópur meðlima í Ungum gegn ESB-aðild Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Sjá meira
Atvinnuleysi í Garðabæ hefur aukist um 42% á einu ári. Hvergi á landinu eru fleiri háskólamenntaðir skráðir atvinnulausir en í Garðabæ eða 41% á meðan meðaltal sambærilegra sveitarfélaga er um 23% samkvæmt heimildum Vinnumálastofnunar. Þessari þróun vill Garðabæjarlistinn sporna við með markvissum aðgerðum til eflingar atvinnulífs og atvinnutækifæra. Þau tækifæri eru tilvalin tekjuaukning fyrir bæjarfélagið í formi aukins útsvars, aukinna tekna af atvinnustarfsemi og mögulega fyrirbyggjandi í aukningu umsókna um félagsleg úrræði.Röng forgangsröðun meirihlutans Á síðustu fjórum árum hefur lítið verið gert til að efla atvinnustarfsemi. Eitt af fyrstu verkum núverandi meirihluta var að leggja niður atvinnu- og tækniþróunarnefnd með þeim rökum að málaflokkurinn yrði færður til bæjarráðs. Undirritaður óskaði í framhaldi eftir því að málefni atvinnu og tækniþróunar yrði reglulegur dagskrárliður á fundum bæjarráðs. Það hefur ekki gerst enn á þessu kjörtímabili. Einu málin sem hafa verið rædd er koma Costco og tilraunir til að fá Vínbúðina á Garðatorg. Ekki hefur staðið á því að breyta skipulagi til að henta þessum aðilum þó svo sá seinni hafi alls ekki haft áhuga á Garðatorgi.Forgangsröðum skipulagi fyrir atvinnustarfsemi Garðabæjarlistinn vill forgangsraða deiluskipulagi fyrir atvinnustarfsemi. Í augnablikinu myndi Garðabær ekki geta tekið á móti fyrirtæki sem óskaði eftir lóð í Garðabæ fyrir sína starfsemi. Einfaldlega vegna þess að hún er ekki til á skipulagi. Garðabær á nægt land til að skipuleggja sem er tilvalið til atvinnustarfssemi. Það eina sem vantar er pólitískan vilja. Við viljum sjá tækifæri fyrir smærri og millistór fyrirtæki að setjast að eða hefja sína starfsemi í Garðabæ. Fyrirtæki sem eru með háa verðmætasköpun og kalla eftir menntuðu starfsfólki.Ávinningur samfélagsins Með því að skapa fleiri störf í Garðabæ eru meiri líkur á að Garðbæingar geti sótt atvinnu í bæjarfélagið. Þetta styttir daglegar ferðir í og úr vinnu, gerir íbúum mögulegt að vera nær skólum, íþróttastarfsemi og losar íbúa frá því að þurfa sitja löngum tímum í umferðahnútum höfuðborgarsvæðisins. Fjárhagslegur ávinningur Garðabæjar er töluverður í formi aukins útsvars og aukinna tekna af atvinnustarfssemi. Ávinningur íbúa eru fleiri tækifæri til að búa og starfa í Garðabæ. Ávinningur umhverfisins er minni mengun. Virkjum lýðræðið, kjósum Garðabæjarlistann og gerum Garðabæ fyrir alla. Líka atvinnurekstur.Höfundur er bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar og skipar 4. sæti á lista Garðabæjarlistans.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar