Fjölbreyttir yogatímar hjá Hilton Reykjavík Spa Hilton Reykjavík Spa kynnir 2. janúar 2018 11:00 Þóra Hlín Friðriksdóttir jógakennari hefur átján ára reynslu á sínu sviði. MYNDIR/EYÞÓR
Hilton Reykjavík Spa er heilsulind sem veitir fyrsta flokks þjónustu í afslöppuðu og fallegu umhverfi. Meðal þess sem boðið er upp á eru fjölbreyttir yogatímar undir handleiðslu fagmenntaðra kennara með langa reynslu og þekkingu. Hjá Hilton Reykjavík Spa er lögð áhersla á að veita persónulega og góða þjónustu fyrir líkama og sál. Fyrir utan glæsilega líkamsræktaraðstöðuna er boðið upp á spa, snyrtistofu og nudd hjá Hilton.Þóra Hlín segir að jóga sé fyrir alla. Mikil aukning hefur verið í jógatímana hjá Hilton Spa að undanförnu og nú verður boðið upp á klippikort.Vísir/EyþórÞóra Hlín Friðriksdóttir hefur kennt yoga hjá Hilton Reykjavík Spa síðastliðin sjö ár, ásamt því að vera menntaður hjúkrunarfræðingur. Hún segir Hilton Spa bjóða yogaiðkendum nýjung eftir áramótin en þá verður boðið upp á sérstök klippikort fyrir fólk sem vill eingöngu koma og æfa yoga í stöðinni. „Klippikortin eru nýjung hjá okkur en þau fela í sér aðgang að hátt í tíu fjölbreyttum yogatímum á viku. Í boði er fjölbreytt úrval af yoga og má þar til dæmis nefna Vinyasa yoga, YogaCore með áherslu á kvið og bakvöðva, Hot Yoga, Hlýtt Yoga og Hot Yoga sculpt þar sem notuð eru lóð. Í Hot Yoga er æft í fullbúnum upphituðum sal,“ segir Þóra Hlín og bætir við að allir yogatímar sem í boði eru henti öllum, bæði byrjendum og lengra komnum. „Yogaiðkun er fyrir alla og ekki þarf að vera með ákveðinn liðleika, styrk eða færni til að mæta til okkar á mottuna. Aðalatriðið er að mæta og upplifa þann margþætta ávinning sem yogatímarnir fela í sér. Hver og einn mætir þannig á sínum eigin forsendum,“ segir hún.Patrick J. Chiarolanzio hefur langa reynslu sem þjálfari. Hann aðstoðar meðlimi Hilton Spa í tækjasalnum.Þóra Hlín segir að allir yogatímar séu í raun jafnvinsælir. „Fólk mætir jafnt í heita tíma og þá hefðbundnu. Við bjóðum upp á morguntíma kl. 9.30 og síðdegistíma. Þá eru mjög vinsælir tímar á laugardagsmorgnum og sunnudögum. Við erum með fjölbreytt úrval af yogatímum alla daga vikunnar.“ Þóra Hlín segir að klippikortið í yoga feli ekki í sér aðgang að heilsulindinni, það er heitum pottum og herðanuddi. Í staðinn er verðinu stillt í hóf, eða 19.900 krónur. „Klippikortið er eingöngu fyrir yoga og gildir í þrjá mánuði,“ segir hún. „Yogatímarnir njóta vaxandi vinsælda hjá okkur. Við höfum því fjölgað tímum jafnt og þétt og bætt við framúrskarandi kennarahópinn okkar. Við yogaiðkun upplifir fólk fljótlega mun á líkamlegri og andlegri heilsu, orku og vellíðan. Liðleiki og styrkur eykst, sem og andlegt jafnvægi og dýpri ró í daglegu lífi svo fátt eitt sé nefnt.Í Hilton Reykjavík Spa er persónuleg og góð þjónusta í fallegu umhverfi.Maður græðir allt á því að stunda yoga,“ segir Þóra Hlín, sem hefur iðkað Ashtanga yoga síðastliðin átján ár. Þá má líka benda á að Hilton Reykjavík Spa er heimilisleg stöð sem fólk tekur ástfóstri við og kallar jafnvel sitt annað heimili. „Þetta er lítil og fullkomlega búin stöð þar sem fólki líður vel,“ segir hún. Hjá Hilton Reykjavík Spa er unnið með heilsu líkama og sálar. Meðlimir stöðvarinnar fá aðgang að líkamsræktarþjálfara í tækjasal sem útbýr sérsniðna æfingaáætlun fyrir hvern og einn. Þá er heilsulind þar sem boðið er upp á herðanudd í heitum pottum og handklæði við hverja komu. Í spa-aðstöðunni eru þrír heitir pottar, kaldur pottur, vatnsgufur, slökunarlaug og sauna. Þá eru í boði frábærar nudd- og snyrtimeðferðir. Eftir áramótin fara aftur í gang vinsæl 100 daga lífsstílsnámskeið undir handleiðslu næringarfræðings og þjálfara og hefst það fyrsta 8. janúar. Frábært námskeið fyrir þá sem vilja aðhald í mataræði og líkamsrækt. Þá verður einnig námskeið fyrir 60 ára og eldri sem hefst 16. janúar. Skemmtilegir tímar sem sniðnir eru fyrir þá eldri til að styrkja þol, jafnvægi og auka lífsgæði. Hilton Reykjavik Spa er fyrsta flokks heilsurækt á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu og býður upp á allt það besta sem völ er á þegar kemur að líkams- og heilsurækt. Nánar er hægt að skoða líkamsrækt, námskeið og meðferðir á heimasíðunni www.hiltonreykjavikspa.is
Heilsa Kynningar Lífið Mest lesið Sophia Bush kemur út úr skápnum Lífið Grínari selur íbúð í Vesturbænum Lífið „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Lífið Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Lífið „Restin í hárið“ reglan gildir í Flonkyball Lífið samstarf Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Lífið Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Lífið Varð móðir sextán ára Lífið Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Lífið Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Lífið Fleiri fréttir Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Sjá meira