Innlent

Nafn mannsins sem lést í slysi á Vesturlandsvegi

Birgir Olgeirsson skrifar
Hinn látni var ökumaður fólksbílsins
Hinn látni var ökumaður fólksbílsins Vísir
Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Vesturlandsvegi í gær hét Einar Þór Einarsson, fæddur árið 1980. Hann var búsettur á Akranesi, ókvæntur og barnlaus.

Slysið átti sér stað klukkan 09.35 í gær á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi. Þar rákust saman fólksbíll og flutningabíll en Einar var ökumaður fólksbílsins.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.


Tengdar fréttir

Banaslys á Kjalarnesi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×