Borche: Reyndi að koma og taka í höndina á honum en hann vildi það ekki Böðvar Sigurbjörnsson skrifar 5. október 2018 22:34 Borche gefur skipanir til sinna manna í kvöld. vísir/bára
Það var mikill hiti í Garðabæ í kvöld er Stjarnan vann góðan sigur ÍR í fyrstu umferð Dominos-deildarinnar. Þjálfararnir tókust ekki í hendur í leikslok. „Við fengum sennilega okkar besta hálfleik hingað til í fyrri hálfleik ef við teljum með undirbúningstímabilið en síðan fengum við slæman seinni hálfleik,” sagði Borche Iievski, þjálfari ÍR, í leikslok. „Við fengum Gerald til okkar bara fyrir tveimur dögum síðan og hann á eftir að aðlagast leik okkar betur. Við erum því ekki komnir nægilega langt í okkar undirbúningnum en við eigum eftir að vinna í þessum hlutum og verðum betri þegar líður á.“ Spurður út í ummæli þjálfara Stjörnunnar hafði Borche þetta að segja. „Ég veit ekki hvað hann sagði en á undirbúningstímabilinu ákvað ég að spila lokaðan æfingaleik sem hann var mættur til að horfa á, ég ákvað að þetta yrði lokaður leikur. Ástæða þess er sú að ég gat ekki fengið neinar upplýsingar um Stjörnuna og þeirra leik á undirbúningstímabilinu.” „Ég reyndi að fá upptökur af þeirra leik frá því að þeir spiluðuð á Glacial mótinu en engin vildi láta mig hafa upptökur frá þeirra leikjum. Ég hafði því engar upplýsingar til að vinna úr, á sama tíma hafði Arnar komið tvisvar áður á okkar heimavöll til að horfa á okkur spila auk þess sem ég veit að hann fékk upptökur frá öðrum leikjum okkar á undirbúningstímabilinu.” „Þetta er bara spurning um það að ef þú ert ekki tilbúinn til að deila upplýsingum með öðrum þá getur þú ekki vænst þess að fá upplýsingar á móti, þetta er ekkert annað en það. Ég reyndi að koma til hans að leik loknum og taka í hönd hans en hann vildi það ekki og þannig endaði það,” sagði Borche Iievski þjálfari ÍR að leik loknum.
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Á sársaukafullar minningar af HM Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Sjá meira