Faldi myndavélar í sápubrúsum Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. ágúst 2018 11:30 Maðurinn er sagður hafa kveikt á myndavélunum með fjarstýringu eftir að konurnar höfðu komið sér fyrir í sturtunni. vísir/getty
Nýsjálenskur karlmaður játaði í morgun að hafa fest á filmu sturtuferðir 34 kvenna á gistiheimili sínu. Upptökurnar fangaði hann með aðstoð falinna myndavéla sem hann hafði komið fyrir í sápubrúsum. Maðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur til að vernda eiginkonu hans, er sagður hafa fangað alls 219 myndskeið af konum í sturtu á þriggja mánaða tímabili, frá desember í fyrra fram í febrúar á þessu ári. Maðurinn hlóð myndskeiðunum upp á klámsíður og skrifaði hann stuttar lýsingar við mörg þeirra. Földu myndavélarnar fönguðu konurnar frá öxlum og niður á hné en í einhverju tilfellum á einnig að hafa sést í andlit kvennanna. Ekki er vitað á þessari stundu hvort maðurinn hafi keypt myndavélarnar á netinu eða útbúið þær sjálfur. Þolendur mannsins voru flestar á þrítugsaldri. Lögreglunni hefur tekist að hafa uppi á flestum þeirra. Í tilkynningu frá konunum segjast þær vera í áfalli og mjög reiðar vegna málsins. Þegar maðurinn var handtekinn í febrúar síðastliðnum á hann að hafa sagt við lögreglumenn að honum þætti athæfið spennandi. Það væri ekki síst áhættan og óttinn við það að vera gómaður sem hvatti hann áfram. Nýsjálenska lögreglan hefur eytt myndbandsupptökunum. Dómur verður kveðinn upp yfir manninum í október en talið er að hann gæti fengið allt að 14 ára fangelsisdóm.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira